Sverðnykra (Potamogeton compressus)

Útbreiðsla

Mjög sjaldgæf nykra á Íslandi, aðeins fundin í einu vatni, í Berufjarðarvatni við Bjarkarlund. Hún fannst fyrst sumarið 2012 í leiðangri sem Náttúrufræðistofa Kópavogs gerði út til rannsóknar á lífríki vatnsins.

Búsvæði

Vex í breiðum í botni vatns á 1,7 m dýpi.

Lýsing

Blað

Blöðin eru bandlaga, 4-6 mm á breidd og minna helst á blöð mógrafabrúsa í lögun, en eru þéttstæð og standa í tveim röðum eftir stönglinum. Um þriggja til fjögurra sm löng slíðurhimna er við blaðfótinn.

Blóm

Blómin standa mörg saman í axi á stöngulendum, en ekki er vitað til að nykran hafi blómstrað hér á landi.

Greining

Sverðnykran er ólík öllum öðrum íslenskum nykrum, og því auðþekkt frá þeim.

Válistaflokkun

DD (vantar gögn)

ÍslandHeimsválisti
DD NE

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Sverðnykra er ekki á válista.

Válisti 1996: Sverðnykra er ekki á válista.

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Einkímblöðungar (Liliopsida)
Ætt (Family)
Nykruætt (Potamogetonaceae)
Tegund (Species)
Sverðnykra (Potamogeton compressus)