Skip to main content
search

Mikilvæg fuglasvæði

Á Íslandi hafa verið skilgreind svæði sem teljast alþjóðlega mikilvæg fyrir 81 fuglategund sem annað hvort verpa hér eða eru reglulegir gestir. Alls eru svæðin 121 og eru þau flokkuð í þrjá meginflokka: 

  • Sjófuglabyggðir
  • Fjörur og grunnsævi
  • Votlendi og önnur svæði

Mörk margra svæða eru fremur lauslega dregin. Fyrir tegundir sem verpa mjög dreift, eins og mófugla og ránfugla, þurfa verndarsvæðin óhjákvæmilega að vera stór til að ná utan um umtalsverðan hluta stofnsins. Aftur á móti er oftast auðvelt að afmarka sjófuglabyggðir.
 

Ítarleg umfjöllun um aðferðafræði og val á mikilvægum fuglasvæðum er í Fjölriti Náttúrufræðistofnunar nr. 55, Mikilvæg fuglasvæði á Íslandi og á staðreyndasíðum um mikilvæg fuglasvæði á vef stofnunarinnar.

Mikilvæg fuglasvæði eru sameinuð vistgerðum í einni kortasjá og er jafnframt hægt að skoða í Kortaglugga með fleiri gögnum. 

Í lýsigagnagátt er hægt að nálgast gögnin og skoða upplýsingar um þau: