Myndasögur
Hér eru birtar fimm fræðslumyndasögur um líffræðilega fjölbreytni. Sú fyrsta er inngangur að umfjöllunarefninu, líffræðilegri fjölbreytni. Þar eru hugtökin vistkerfi og líffræðileg fjölbreytni útskýrð og tengd við íslenskar aðstæður og hnattrænt samhengi. Önnur sagan fjallar almennt um hningun líffræðilegrar fjölbreytni í heiminum, hvers vegna hún á sér stað, hvernig ferlið virkar í grunnatriðum og í hverju verðmæti líffræðilegrar fjölbreytni eru fólgin. Þriðja sagan tekur fyrir röskun og eyðingu búsvæða, sem telst helsta ógnin við líffræðilega fjölbreytni í heiminum. Fjórða sagan fjallar um aðra stóra óg: framandi og ágengar tegundir á Íslandi, sem borist hafa með auknum samgöngum og vöruflutningum milli landa. Þar er sjónum beint sérstaklega að stöðu þessara tegunda á Íslandi. Í fimmtu og síðustu sögunni fá lesendur innsýn í tvö viðkvæm og sérstök vistkerfi sem oft fá litla umfjöllun: jarðhitavistkerfi og íslensk kóralsvæði.
Myndasögurnar eru afrakstur verkefnis sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna en markmið þess var að þróa hugmyndina um notkun myndasagna í fræðsluskyni.
Myndskreytingar: Vala Steingrímsdóttir
Texti: Unnar Ingi Sæmundarson
