Umsagnir
Náttúrufræðistofnun veitir lögbundnar umsagnir um fjölmargt sem lýtur að nýtingu náttúrunnar (sjá Lög og reglugerðir). Umsagnir stofnunarinnar varða meðal annars friðlýsingar á landi og í hafi, tillögur um afléttingu friðunar, framkvæmdir á friðuðum svæðum, veiðar á friðuðum dýrum eða undanþágur vegna umgengni við friðuð dýr, útflutning náttúrugripa og innflutning framandi lífvera. Þá leita fagnefndir Alþingis, einkum umhverfis- og samgöngunefnd, iðulega til stofnunarinnar varðandi umsagnir um lagafrumvörp eða þingsályktunartillögur.
Einnig veitir stofnunin umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu umsagnir um ýmisar leyfisveitingar, svo sem er varða auðlindanýtingu. Náttúrufræðistofnun veitir einnig almenna ráðgjöf eða umsagnir til sveitarfélaga, fyrirtækja eða einstaklinga og er þá leitað eftir áliti út frá þeirri fagþekkingu sem stofnunin býr yfir.