Skip to main content
search

RANNSÓKNIR

Meginhlutverk Náttúrufræðistofnunar er að stunda undirstöðurannsóknir í dýrafræði, grasafræði og jarðfræði landsins. Stofnunin annast skipulega heimildasöfnum um íslenska náttúru, skrásetur tilvist tegunda og kortleggur útbreiðslu þeirra. Vöktun og rannsóknir ná til lands, sjávar og ferskvatns og eru niðurstöður varðveittar í gagnasöfnum stofnunarinnar.

Í vísindasöfnum Náttúrufræðistofnunar eru varðveitt eintök og sýni af tegundum lífvera, steingervingum, seti, gjósku, borkjörnum, steindum og bergi. Um er að ræða fræðileg söfn sem eru mikilvæg undirstaða í rannsóknum á náttúru landsins. Þau eru meðal annars notuð til samanburðar á eintökum og við frekari rannsóknir og endurspegla bæði breytileika náttúrunnar og sögu lands og lífs.

Vísindasöfnin skiptast í þrjú meginsöfn: dýrasafn, plöntu- og sveppasafn og jarðfræðisöfn. Safneintök eru stundum lánuð innlendum og erlendum fræðimönnum til rannsókna. Að auki eru náttúrugripir lánaðir tímabundið á sýningar og til fræðslu á vegum opinberra stofnana eða viðurkenndra sýningarsafna. Reglur um gripalán.