Skip to main content
search

Válistar og friðun

Válisti er skrá yfir lífverur sem eiga undir högg að sækja, eru í útrýmingarhættu eða hefur verið útrýmt. Við gerð válista er stuðst við viðmið Alþjóðanáttúruverndarsambandsins, IUCN, en það gerir kröfur um nokkuð nákvæma vitneskju um útbreiðslu tegunda, fjölda einstaklinga og stofnstærðarbreytingar.

Náttúrufræðistofnun tekur saman Válista yfir lífríki landsins. Á Válista fugla 2025 er fjallað um 91 fuglategund sem er metin. Þeim er raðað í sjö hættuflokka. Þar af eru 43 tegundir á válista. Á Válista spendýra 2018 er fjallað um 18 tegundir spendýra sem eru metnar. Þeim er raðað í sex hættuflokka. Þar af eru sex tegundir á válista.

Allir fuglar og landspendýr falla undir lög um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum nr. 64/1994, með undanþágum.