Lög og reglugerðir
Hlutverk Náttúrufræðistofnunar er skilgreint í 3. og 4. gr. laga nr. 54/2024 um Náttúrufræðistofnun og náttúrustofur. Stofnunin rekur náttúrurannsóknastöð við Mývatn samkvæmt lögum nr. 97/2004 um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu.
Önnur lög er varða starfsemi Náttúrufræðistofnunar
Í lögum nr. 22/2015 um örnefni er kveðið á um að samþykktir og tillögur að nýjum örnefnum skuli berast Náttúrufræðistofnun. Stofnunin heldur utan um örnefnagrunn.
Í lögum nr. 60/2013 um náttúruvernd er að kveðið á um hlutverk Náttúrufræðistofnunar í tengslum við friðlýsingu náttúruminja á landi og í sjó, stofnun þjóðgarða, gerð náttúruverndaráætlunar og náttúruminjaskrár, auk annarra þátta sem tengjast verndun náttúrunnar. Sömuleiðis skal upplýsa stofnunina um breytingar á vegaskrá.
Í lögum nr. 55/2013 um velferð dýra er kveðið á um að Náttúruverndarstofnun skuli afla umsagnar Náttúrufræðistofnunar og Matvælastofnunar áður en leyfi er veitt til föngunar villtra dýra.
Í lögum nr. 90/2011 um skeldýrarækt er kveðið á um að Náttúrufræðistofnun sé meðal umsagnaraðila um svæðaskiptingu skeldýraræktar, staðbundið bann og veitingu ræktunarleyfa.
Í 10 gr. laga nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun er kveðið á um að verkefnisstjórn skuli meðal annars leita umsagnar Náttúrufræðistofnunar um hvort fyrirliggjandi gögn um einstaka virkjunarkosti séu fullnægjandi til að meta þá þætti sem taka skal tillit til við gerð verndar- og orkunýtingaráætlunar.
Í lögum nr. 44/2011 um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar hefur Náttúrufræðistofnun umsjón með framkvæmd laganna fyrir hönd umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Það felur meðal annars í sér frumkvæði við innleiðingu laganna, þekkingarmiðlun og rekstur miðlægrar landupplýsingagáttar sem stenst kröfur INSPIRE-tilskipunarinnar. Reglugerðir nr. 390/2012 um lýsigögn fyrir stafrænar landupplýsingar og nr. 414/2014 um stafrænar landupplýsingar kveða nánar á um framkvæmd laganna.
Í 9. og 10. gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála er kveðið á um að Náttúrufræðistofnun veiti ráðgjöf og tilnefni fulltrúa í ráðgjafarnefnd um málaflokkinn.
Í lögum nr. 60/2007 um Vatnajökulsþjóðgarð er kveðið á um að verndaráætlun skuli meðal annars unnin í samráði við Náttúrufræðistofnun. Einnig skal leita álits stofnunarinnar á vistfræðilegu þoli þeirra svæða þar sem heimila á veiðar og búfjárbeit. Við setningu reglugerðar skal miðað við að landnýting innan þjóðgarðsins sé sjálfbær að mati Náttúrufræðistofnunar.
Í 3. gr. laga nr. 35/2007 um Náttúruminjasafn Íslands er kveðið á um að Náttúrufræðistofnun sé vísindalegur og faglegur bakhjarl Náttúruminjasafnsins. Stofnanirnar skulu hafa með sér náið samstarf sem grundvallast á sérstöku samkomulagi. Safnkostur Náttúruminjasafns Íslands, ásamt vísindasöfnum Náttúrufræðistofnunar, er undirstaða fræðslu-, sýningar- og rannsóknastarfsemi safnsins.
Í 3. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða er kveðið á um að Hafrannsóknastofnun og Náttúrufræðistofnun skuli stunda rannsóknir og vöktun á sjávargróðri og vistgerðum, vistkerfum og lífríki sem tengist honum. Hafrannsóknastofnun skal vera stjórnvöldum til ráðgjafar um nýtingu sjávargróðurs, sbr. II. kafla A, og leita umsagnar Náttúrufræðistofnunar um ráðgjöf sína. Ráðgjöf, rannsóknir og vöktun á nýtingu sjávargróðurs skal meðal annars taka mið af 2. gr. laga um náttúruvernd um verndarmarkmið fyrir vistgerðir, vistkerfi og tegundir, sem og lögum um vernd Breiðafjarðar. Hafrannsóknastofnun og Náttúrufræðistofnun skulu sameiginlega gera vöktunaráætlun um nýtingu sjávargróðurs sem verður hluti af vöktun lykilþátta íslenskrar náttúru í samræmi við 1. og 2. mgr. 74. gr. laga um náttúruvernd.
Í 11. gr. laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði er kveðið á um að leita skuli meðal annars umsagnar Náttúrufræðistofnunar áður en heimiluð er ófriðun sellátra og upptaka allra selalagna í eða við veiðivatn eða fiskihverfi. Í 25. gr. laganna er einnig kveðið á um að leita skuli umsagnar stofnunarinnar ef rétt þykir að eyða fiski eða lagardýrum úr veiðivatni vegna sjúkdóma eða sníkjudýra.
Lög nr. 97/2004 um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu.
Í 5. gr. laga nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda er kveðið á um að Náttúrufræðistofnun sé meðal þeirra aðila sem veita ráðherra ráðgjöf um þau atriði sem að lögunum lúta og heyra undir starfsemi þeirra.
Í 24. gr. laga nr. 13/2001 um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis er fjallað um samráðshóp eftirlitsaðila vegna leitar, rannsóknar og vinnslu kolvetnis við Ísland. Umhverfis- og orkustofnun skal starfrækja og leiða starf samráðshópsins en í honum situr meðal annars fulltrúi skipaður af Náttúrufræðistofnun.
Í 16. gr. búnaðarlaga nr. 70/1998 er kveðið á um að ráðherra skipi í erfðanefnd landbúnaðarins að fengnum tilnefningum meðal annars frá Náttúrufræðistofnun.
Í 34. gr. laga nr. 57/1998 um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu er kveðið á um að Náttúrufræðistofnun hafi eftirlit með rannsóknum og nýtingu á örverum á jarðhitasvæðum. Örverur sem eiga uppruna sinn á slíkum svæðum og erfðaefni þeirra má ekki flytja úr landi nema með leyfi Náttúrufræðistofnunar og samkvæmt þeim skilyrðum sem stofnunin setur hverju sinni.
Í 3. gr. laga nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum er kveðið á um að Náttúrufræðistofnun skuli, í samstarfi við Veðurstofu Íslands, afla gagna um skriðuföll og meta hættu af völdum þeirra.
Í 17. gr. laga nr. 18/1996 er kveðið á um að Umhverfis- og orkustofnun skuli meta hverja umsókn um sleppingu eða dreifingu erfðabreyttra lífvera á grundvelli framkominna gagna og umsagna og taka afstöðu til þess hvort leyfi skuli veitt, að fengnum tillögum Náttúrufræðistofnunar.
Í 7. gr. laga nr. 54/1995 um vernd Breiðafjarðar er kveðið á um að Náttúrufræðistofnun skuli með rannsóknum vinna markvisst að því að auka þekkingu á náttúru fjarðarins til að tryggja sem best verndun hans.
Samkvæmt 4. gr. laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, ber Náttúrufræðistofnun að stunda rannsóknir á villtum dýrum og vera til ráðgjafar um ástand og veiðiþol þeirra stofna sem veiðar eru stundaðar á. Náttúrufræðistofnun hefur ein heimild til að láta merkja villta fugla á Íslandi og ber hverjum þeim sem finnur eða handsamar merktan fugl að senda merkið til stofnunarinnar ásamt nánari upplýsingum um fundinn.
Í 5. gr. laga nr. 54/1990 er kveðið á um að áður en leyfi er veitt til innflutnings á nýjum dýrategundum eða erlendum stofnum tegunda sem fyrir eru á Íslandsi skuli ráðherra afla umsagnar erfðanefndar landbúnaðarins. Til slíks innflutnings skal jafnframt afla leyfis Náttúruverndarstofnunar í samræmi við ákvæði 63. gr. laga um náttúruvernd. Náttúrufræðistofnun á fulltrúa bæði í erfðanefnd landbúnaðarins, samkvæmt 16. gr. Búnaðarlaga nr. 70/1998, og í ráðgjafanefnd sérfræðinga um innflutning og ræktun framandi tegunda og dreifingu lífvera, samkvæmt 63. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd.
Önnur lög
Náttúrufræðistofnun er oft umsagnaraðili í tengslum við ýmis lög, svo sem vegna hlutverks hennar við ráðgjöf um landnýtingu. Þau helstu eru:
Lög nr. 84/2023 vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga
Lög nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana
Lög nr. 33/2019 um skóga og skógrækt
Lög nr. 155/2018 um landgræðslu
Lög nr. 96/2018 um Ferðamálastofu
Lög nr. 88/2018 um skipulag haf- og strandsvæða
Lög nr. 20/2016 um landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum
Lög nr. 40/2015 um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum
Efnalög nr. 61/2013
Lög nr. 55/2013 um velferð dýra
Lög nr. 80/2012 um menningarminjar
Lög nr. 55/2012 um umhverfisábyrgð
Lög nr. 123/2010, Skipulagslög
Lög nr. 85/2005 um verndun Þingvallavatns og vatnasviðs þess
Lög nr. 47/2004 um Þjóðgarðinn á Þingvöllum
Lög nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum
Lög nr. 85/2000 um framkvæmd samnings um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu
Lög nr. 75/2000 um brunavarnir
Lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir
Lög nr. 93/1995 um matvæli
Reglugerðir
Reglurgerðir sem varða starfsemi Náttúrufræðistofnunar má finna á reglugerðarvefnum.
- 1007/2024 Reglugerð um öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni.
- 160/2024 Reglugerð um merki fasteigna.
- 677/2021 Reglugerð um meðferð plöntuverndarvara og útrýmingarefna.
- 300/2020 Reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð.
- 260/2018 Reglugerð um vegi í náttúru Íslands samkvæmt lögum um náttúruvernd.
- 577/2017 Reglugerð um skráningu staðfanga.
- 493/2017 Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 993/2004 um framkvæmd samnings um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu.
- 980/2015 Reglugerð um meðferð varnarefna.
- 414/2014 Reglugerð um stafrænar landupplýsingar.
- 1010/2012 Reglugerð um viðbrögð við bráðamengun hafs og stranda.
- 665/2012 Reglugerð um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu.
- 664/2012 Reglugerð um Náttúrurannsóknastöðina við Mývatn o.fl.
- 390/2012 Reglugerð um lýsigögn fyrir stafrænar landupplýsingar.
- 1357/2011 Reglugerð um landshæðarkerfi Íslands ISH2004.
- 935/2011 Reglugerð um stjórn vatnamála.
- 728/2011 Reglugerð um sleppingu eða dreifingu og markaðssetningu erfðabreyttra lífvera.
- 918/2009 Reglugerð um innihald IS 50V landfræðilegs gagnasafns um Ísland.
- 685/2008 Reglugerð um viðmiðun ISN2004, grunnstöðvanet og mælistöðvar til notkunar við landmælingar og kortagerð.
- 608/2008 Reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð.
- 650/2006 Reglugerð um framkvæmd verndunar vatnasviðs og lífríkis Þingvallavatns.
- 829/2005 Reglugerð um framkvæmd samnings um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu.
- 554/2005 Reglugerð um samvinnunefnd um málefni norðurslóða.
- 1077/2004 Reglugerð um aðbúnað og umhirðu gæludýra og dýrahald í atvinnuskyni.
- 993/2004 Reglugerð um framkvæmd samnings um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu.
- 486/2003 Reglugerð um stjórn hreindýraveiða.
- 589/2001 Reglugerð um skipulag og starfsemi Náttúrustofu Reykjaness í Sandgerði.
- 583/2000 Reglugerð um innflutning, ræktun og dreifingu útlendra plöntutegunda.
- 512/1997 Reglugerð um skipulag og starfsemi Náttúrustofu Vesturlands í Stykkishólmi.
- 252/1996 Reglugerð um friðun tiltekinna villtra fuglategunda, friðlýsingu æðavarps, fuglamerkingar, hamskurð o.fl.
- 649/1995 Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 384/1994 um skipulag og starfsemi náttúrustofu Austurlands í Neskaupstað.
- 643/1995 Reglugerð um skipulag og starfsemi náttúrustofu Suðurlands í Vestmannaeyjum.
- 437/1995 Reglugerð um refa- og minkaveiðar.
- 384/1994 Reglugerð um skipulag og starfsemi Náttúrustofu Austurlands í Neskaupstað.