Laugadepla (Veronica anagallis-aquatica)

Útbreiðsla

Hún er sjaldgæf, finnst einkum á suðvesturlandi. Hún vex frá láglendi upp í 350 m hæð við jarðhita, hæst skráð í Landmannalaugum í 500 metrum.

Búsvæði

Vex aðeins við laugar og í volgum lækjum.

Lýsing

Meðalhá jurt (20–50 sm) með heilrend blöð og bláleita blómklasa. Blómgast í júlí–ágúst.

Blað

Getur myndað þéttar breiður. Stönglarnir eru oftast uppréttir eða fljóta í vatni. Laufblöðin gagnstæð, egglaga eða breiðoddbaugótt, 2–8 sm á lengd, heilrend eða með örsmáum tannörðum, nær hárlaus, óstilkuð (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Blómin mörg saman í klösum sem standa í blaðöxlunum. Blómleggir 3–6 mm á lengd, með stuttum kirtilhárum. Blómin 4–5 mm í þvermál. Krónan ljósfjólublá með fjórum, misstórum krónublöðum. Bikarblöðin græn, breiðoddbaugótt, 2–3 mm á lengd. Tveir fræflar. Ein fræva með einum stíl (Hörður Kristinsson 2010).

Aldin

Aldinið ívið styttra en bikarblöðin (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Þekkist frá öðrum deplum á gagnstæðum blómklösum, hárlausum og stórblöðóttum sprotum.

Válistaflokkun

VU (tegund í nokkurri hættu)

ÍslandHeimsválisti
VU LC

Forsendur flokkunar

Laugadepla flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 13 km2.

Viðmið IUCN: D2

D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.
D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Laugadepla er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Válisti 1996: Laugadepla er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Græðisúruætt (Plantaginaceae)
Tegund (Species)
Laugadepla (Veronica anagallis-aquatica)