Hnotsörvi (Zannichellia palustris)

Útbreiðsla

Fremur sjaldgæf jurt, vantar í suma landshluta. Hefur aðeins fundist á láglendi, hæst í volgum vogum í Mývatni í um 270 m.

Búsvæði

Vex í grunnum síkjum eða vatnsrásum á láglendi, nálægt sjó og oft í lónum eða vatnsfarvegum sem sjór kemst inn í um háflóð. Finnst einnig við jarðhita í vatni lengra inni í landi.

Lýsing

Fíngerð, fremur lágvaxin (15–30 sm) vatnajurt með mjó blöð og bjúglaga aldin í blaðöxlunum. Blómgast í júlí.

Blað

Fíngerð, marggreind jurt. Blöðin gagnstæð eða kransstæð, oftast þrjú í kransi, 1,5–5 sm á lengd, þráðmjó (0,3 mm), með himnukenndum slíðrum (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Blómin í blaðöxlunum, einkynja, venjulega eitt karlblóm og eitt kvenblóm í hverjum blaðkransi. Kvenblómin hafa þrjár til fimm frævar (Hörður Kristinsson 2010).

Aldin

Aldinin bjúglaga, 2–3 mm á lengd, með smá trjónu í endann (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Líkist þráðnykru og smánykru, hnotsörvið þekkist best á hinum bjúglaga aldinum í blaðöxlunum.

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Einkímblöðungar (Liliopsida)
Ætt (Family)
Nykruætt (Potamogetonaceae)
Tegund (Species)
Hnotsörvi (Zannichellia palustris)