Blæösp (Populus tremula)

Útbreiðsla

Villt blæösp hefur fundist á 8 stöðum á Íslandi, 6 á Austurlandi og 2 á Norðurlandi. Auk þess hefur hún verið ræktuð á allmörgum stöðum þar sem hún breiðist hægt út með rótarskotum. Blæöspin fannst fyrst á Íslandi árið 1911 að Garði í Fnjóskadal. Líkur eru því á því að hún hafi verið hér eitthvað í birkiskógunum þegar landnámsmenn komu að landinu, en þó væntanlega nokkuð staðbundin. Síðan hafi hún horfið að mestu eftir því sem skógarnir eyddust, en tórt á nokkrum stöðum í sverðinum, og kemur síðan fram aftur smátt og smátt eftir því sem beitarálagi léttir af vaxtarstöðum hennar.

Almennt

Tegundin þolir illa mikla beit og hefur nær verið útrýmt á meðan allt landið var nýtt til stöðugrar beitar.

Búsvæði

Móar og kjarrlendi (Hörður Kristinsson 2010).

Lýsing

Lítið tré eða runni, allt að 6 m hátt. Laufblöðin eru tennt og svo gott sem kringlótt.

Blað

Trénaðir stönglar, oft skriðulir eða jarðlægir. Fjölgar sér með rótarskotum. Blöðin stilkuð. Blaðkan kringlótt eða egglaga, stundum aðeins odddregin í endann, tennt, oftast 2–6 sm í þvermál, fagurgræn ofan en grádöggvuð á neðra borði, nær hárlaus nema helst neðan til á blaðstrengjum. Stilkar og ungar greinar hærðar (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Blómstrar ekki hér á landi svo vitað sé (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Líkist engri annarri íslenskri tegund.

Válistaflokkun

VU (tegund í nokkurri hættu)

ÍslandHeimsválisti
VU LC

Forsendur flokkunar

Blæösp flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 10 km2.

Viðmið IUCN: D2

D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.
D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Blæösp er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Válisti 1996: Blæösp er ekki á válista.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Víðisætt (Salicaceae)
Tegund (Species)
Blæösp (Populus tremula)