Smánetla (Urtica urens)

Útbreiðsla

Fremur fágæt jurt. Gamall slæðingur í landinu sem virðist hafa verið útbreiddari á fyrri hluta síðustu aldar en hún er í dag. Útbreiðsla hennar er afar óstöðug og hún er líklega löngu horfin frá sumum þeim fundarstöðum sem hún áður hefur vaxið á. Hún vex aðeins á láglendi, hæst fundin í Mývatnssveit í um 270 m.

Búsvæði

Vex einkum í áburðarríkum jarðvegi, í heimilisgörðum, sem illgresi í kartöflugörðum, við fjóshauga og innan um sjórekinn þara í fjörum.

Lýsing

Einær, meðalhá planta (10–50 sm) með egglaga, ljósgrænum blöðum og löngum brennihárum.

Blað

Stöngullinn er uppréttur, oftast greinóttur, gáraður, með strjálum, grófum brennihárum. Blöðin eru ljósgræn, gagnstæð á alllöngum stilk, blaðkan egglaga eða nær kringlótt, 1,5-3 sm á lengd, mjög gróftennt með löngum tönnum. Mörg, löng brennihár en fá, venjuleg, stutt hár (Hörður Kristinsson, Lid og Lid 2005).

Blóm

Blómin eru örsmá, einkynja, en bæði kynin sitja saman í samsettum, hnúskóttum, grænleitum blómskipunum í blaðöxlunum. Blómhlífarblöðin eru fjögur, græn, kvenblómin með einni frævu en karlblómin með fjórum fræflum. Frjóhirslurnar eru gulgrænar, stórar og fylla alveg út í blómið (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Smánetla líkist brenninetlu en er miklu smávaxnari en brenninetlan, ætíð innan við 50 sm á hæð, blöðin eru minni og ávöl fyrir endann. Hún er ennþá gróftenntari en brenninetla, blaðtennurnar hlutfallslega lengri og mjórri.

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Lid, J. og D.T. Lid. 2005. Norsk flora (7. útg.). Ritstj. Reidar Elven. Det Norske Samlaget, Oslo.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Netluætt (Urticaceae)
Tegund (Species)
Smánetla (Urtica urens)