Sifjarsóley (Ranunculus auricomus)

Útbreiðsla

Sjaldgæf, fundin á örfáum stöðum á Norðurlandi og á nokkrum stöðum á Austfjörðum. Vex upp í 600 m hæð. Hæst er hún skráð í 680 m í Moldargili við Norðfjörð.

Búsvæði

Hún vex að jafnaði í bröttum skriðum til fjalla, oft í grjótskriðum.

Lýsing

Fjölær, meðalhá planta (10–50 sm) með gróftennt blöð og gul blóm í hálfsveip.

Blað

Stönglarnir eru grannir, nánast hárlausir, blöðin stakstæð, hárlaus fyrir utan örstutt randhár, afar margvísleg að lögun. Stofnblöðin eru langstilkuð, nýrlaga, ýmist tennt, sepótt eða 3-7 flipótt að framan, fliparnir oftast tenntir eða sepóttir, efri stofnblöðin minna oft á blöð brennisóleyjar. Stöngulblöðin, einkum þau efri eru skipt niður í gegn í 5-7 heilrenda, striklaga flipa.

Blóm

Blómin eru fimmdeild, 1,5-2,5 sm í þvermál, í hálfsveip (Lid og Lid 2005). Krónublöðin eru gljáandi, gul, litlu lengri en bikarblöðin og stundum vanþroska, ávöl fyrir endann. Bikarblöðin eru bleikmóleit, 5-7 mm á lengd, lítið eitt loðin á neðra borði. Margir fræflar eru í blóminu með 2 mm löngum, gulum frjóhirslum, einnig margar frævur, greinilega hærðar og með krókboginni trjónu.

Aldin

2-3 mm langar, einfræja hnetur, greinilega hærðar og með krókboginni trjónu.

Afbrigði

Sifjarsóley er afar breytileg tegund, í raun safntegund margra smátegunda sem æxlast með geldæxlun án undanfarandi frjóvgunar. Þessar smátegundir hafa verið ítarlega rannsakaðar í Skandinavíu þar sem sifjarsóley hefur verið skipt niður í rúmlega 600 smátegundir eða afbrigði. Það er einkum gerð laufblaðanna og blómbotnsins sem sýna mikinn breytileika og eru notuð til að aðgreina smátegundirnar. 

Greining

Líkist brennisóley en þekkist á mjög fjölbreytilegri blaðlögun, oftast má finna á sömu plöntunni bæði nýrlaga, tennt blöð, einnig blöð með svipaða skerðingu og á brennisóley, en efstu blöðin eru oftast skert alveg niður með striklaga bleðlum. Blómkrónan hefur oft minni, stundum vanþroskuð krónublöð, og frævurnar og síðar aldinin eru greinilega hærð.

Válistaflokkun

VU (tegund í nokkurri hættu)

ÍslandHeimsválisti
VU NE

Forsendur flokkunar

Sifjarsóley flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, þ.e. 16-20 km2 auk þess sem nýlega var afhjúpað að íslenska tegundin er einlend.

Viðmið IUCN: D2

D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.
D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Sifjarsóley er á válista í hættuflokki NT (í nokkurri hættu).

Válisti 1996: Sifjarsóley er ekki á válista.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Lid, J. og D.T. Lid. 2005. Norsk flora (7. útg.). Ritstj. Reidar Elven. Det Norske Samlaget, Oslo.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson júní 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Sóleyjarætt (Ranunculaceae)
Tegund (Species)
Sifjarsóley (Ranunculus auricomus)