Hreistursteinbrjótur (Saxifraga foliolosa)

Útbreiðsla

Einn sjaldgæfasti steinbrjótur landsins. Hann vex aðeins til fjalla, oftast í 800–1200 m hæð. Hann finnst aðeins á nokkrum fjöllum á svæðinu frá Skagafirði austur í Þingeyjarsýslu á Miðnorðurlandi. Á nokkru svæði umhverfis Öxnadalinn og Öxnadalsheiði má heita að hann sé á hverju fjalli en þó á mjög takmörkuðum blettum.

Búsvæði

Vex aðeins til fjalla, í deigum mosa, rökum flögum, lindaseytlum eða neðan bráðnandi skafla.

Lýsing

Lágvaxin jurt (3–12 sm) með græna blaðhvirfingu og greinda blómskipan en blómgast venjulega ekki heldur myndar æxliknappa.

Blað

Laufblöðin eru öll í stofnhvirfingu, tungulaga, tennt að framan og með afar strjálum, randhærðum kirtilhárum. Stöngullinn er beinn, uppréttur, með strjálum kirtilhárum neðan til (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Blómgast venjulega ekki en einstöku sinnum myndast eitt toppstætt blóm sem líkist blómum stjörnusteinbrjóts (Hörður Kristinsson 2010). Blómstilkur greindur, miðstilkurinn lengri en þeir til hliðanna (Lid og Lid 2005).

Aldin

Æxlikornin eru egglaga, sporbaugótt eða öfugegglaga, 1-1,5 mm á lengd, rauðdröfnótt á litinn, venjulega í nokkrum þyrpingum efst á stönglinum, oft fáeinar á enda stuttra hliðargreina sem vaxa út frá blaðöxlum lítilla háblaða ofan til á stönglinum (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Líkist stjörnusteinbrjót en vex aðeins hátt til fjalla og blómgast venjulega ekki. Blöðin eru svipuð og á stjörnusteinbrjóti en þó heldur mjórri (Hörður Kristinsson 1998).

Válistaflokkun

VU (tegund í nokkurri hættu)

ÍslandHeimsválisti
VU NE

Forsendur flokkunar

Hreistursteinbrjótur flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, þ.e. minna en 20 km2.

Viðmið IUCN: D2

D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.
D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Hreistursteinbrjótur er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Válisti 1996: Hreistursteinbrjótur er á válista í hættuflokki LR (í nokkurri hættu).

Verndun

Hreistursteinbrjótur er friðaður samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson. 1998. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (2. útg., texti óbreyttur frá 1986). Íslensk náttúra II. Mál og menning, Reykjavík.

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Lid, J. og D.T. Lid. 2005. Norsk flora (7. útg.). Ritstj. Reidar Elven. Det Norske Samlaget, Oslo.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Steinbrjótsætt (Saxifragaceae)
Tegund (Species)
Hreistursteinbrjótur (Saxifraga foliolosa)