Skógfjóla (Viola riviniana)

Útbreiðsla

Fremur sjaldgæf á Íslandi. Hún er mest á fjórum svæðum, á Reykjanesskaga, Snæfellsnesi, Flateyjarskaga og nyrst á Austfjörðum. Hefur aðeins fundist á láglendi, í 200 m og neðar.

Búsvæði

Hún vex einkum í grasbrekkum og grónum bollum.

Lýsing

Lágvaxin jurt (10–20 sm) með hjartalaga blöðum, gishærðum á efra borði og fjólubláum blómum.

Blað

Jarðstöngull uppréttur, dökkur, með för eftir mörg blöð. Stór blaðhvirfing og stönglar með blöðum og blómum. Blöð og stönglar visna með haustinu. Blöð stilklöng, þunn, breiðhjartalaga, bugsýld við stilkinn, álíka löng og breið, hárlaus neðan en afar gishærð á efra borði, fíntennt. Axlablöðin eru mjó, striklensulaga, tennt (Hörður Kristinsson 2010, Lid og Lid 2005).

Blóm

Blóm skógfjólunnar eru stór, einsamhverf, legglöng og lotin. Krónan er fimmdeild, krónublöðin blá, neðsta blaðið gengur aftur í ljósan eða bláleitan spora sem er nokkuð uppsveigður og oftast þver í endann. Bikarblöðin eru löng, odddregin, en ganga niður í snubbóttan sepa neðst. Fræflar eru 5. Frævan er þríblaða (Hörður Kristinsson 2010, Lid og Lid 2005).

Aldin

Aldinið er 8-10 mm langt þrístrent hýðisaldin sem opnast með því að klofna í þrennt.

Greining

Hún líkist týsfjólu en þekkist á stuttum, hjartalaga laufblöðum. Eins er sporinn mjórri í endann og bláleitari á skógfjólu en týsfjólu.

Válistaflokkun

Skógfjóla er friðuð samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978, um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda. Hún er þó ekki á válista.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Lid, J. og D.T. Lid. 2005. Norsk flora (7. útg.). Ritstj. Reidar Elven. Det Norske Samlaget, Oslo.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Fjóluætt (Violaceae)
Tegund (Species)
Skógfjóla (Viola riviniana)