Geithvönn (Angelica sylvestris)

Útbreiðsla

Geithvönnin vex einkum á láglendi, hæstu fundarstaðir eru í 500 m hjá Laugum við Snæfell, og í 420 m í Karlsdrætti við Hvítárvatn. Geithvönnin er miklu meiri láglendisjurt en ætihvönnin, en er nokkuð útbreidd um mestallt landið. Hún er fremur hitakær og vantar því á sumum útskögum eins og Skaga og Melrakkasléttu, og hún vex aðeins í suðurhlíðum í hléi Jökulfjarða, en ekki norðan á Hornströndum á móti hafi. Hana vantar að mestu á hálendinu, nema í skjóli Langjökuls við Karlsdrátt og Hvítárvatn.

Almennt

Tegundin er oft nefnd geitla en snókahvönn er annað gamalt heiti (Ágúst H. Bjarnason 1994).

Nytjar

Geithvönn ku hafa svipaða verkan sem lækningajurt og ætihvönn nema daufari að öllu leiti (Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir 1998).

Búsvæði

Hún vex einkum í skóglendi, á bökkum og engjum meðfram stórum ám og í blómsælum giljum, brekkum og meðfram hleðslugörðum í flæðimýrum, ætíð í vel grónu landi.

Lýsing

Stórvaxin planta (30–130 sm) með stóra, hvíta, samsetta blómsveipi og fjöðruð blöð. Blómgast í júlí.

Blað

Blöðin tví- til þrífjöðruð, blaðstilkurinn djúpt grópaður að ofan, smáblöðin tennt, blaðslíðrin dumbrauð. Sveipleggir gáraðir, snögghærðir. Stönglar og blöð eru oft bládöggvuð (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Blómin eru 3–5 mm í þvermál, mörg saman í smásveipum sem aftur skipa sér fjölmargir saman í stórsveipi, 10–15 sm í þvermál. Krónan fimmdeild; krónublöðin oddbaugótt eða lensulaga, hvít eða örlítið bleikleit. Fræflar fimm. Frævan skipt í tvennt, með tveim stílum. Reifablöð striklaga (Hörður Kristinsson 2010).

Aldin

Aldinið tvíkleyft (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Geithvönn þekkist frá ætihvönn á flatari blómsveip, bládöggvaðri og fíntenntari blöðum. Blaðstilkar eru einnig djúpt grópaðir og hún er heldur minni en ætihvönnin (Hörður Kristinsson 2010).

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir. 1998. Íslenskar lækningjurtir: söfnun þeirra, notkun og áhrif (2. útg.). Íslensk náttúra IV. Mál og menning, Reykjavík.

Ágúst H. Bjarnason og Eggert Pétursson. 1994. Íslensk flóra með litmyndum. Forlagið, Reykjavík.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Sveipjurtaætt (Apiaceae)
Tegund (Species)
Geithvönn (Angelica sylvestris)