Kattartunga (Plantago maritima)

Útbreiðsla

Hún er algeng allt í kring um landið frá láglendi upp í um 600 m hæð. Hæst er hún skráð í 680 m við Hitulaug nyrðri í Laufrandarhrauni.

Búsvæði

Klettar, bæði við sjó og lengra inni í landi, deigir árbakkar, sjávarfitjar (Hörður Kristinsson 2010).

Lýsing

Fremur lágvaxin planta (5–30 sm) með striklaga blöð og löng blómöx. Blómgast í júní.

Blað

Stöngullinn aðhærður, blaðlaus. Blöðin í stofnhvirfingu, striklaga eða ofurlítið rennulaga, þykk, 3–5 mm breið, 10–20 sm löng, oftast stutthærð en stundum hárlaus (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Blómin smá og ósjáleg, fjórdeild, í alllöngu axi á stöngulendanum. Krónupípan ljósgrænleit, hærð, krónufliparnir fjólubláleitir með breiðum himnufaldi. Bikarblöðin græn, himnurend. Fræflar fjórir með gulum frjóhirslum. Ein fræva með einum stíl (Hörður Kristinsson 2010).

Aldin

Aflangur baukur, um 2–3 mm langur, opnast með þverrifu (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Líkist engri annarri íslenskri tegund.

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Græðisúruætt (Plantaginaceae)
Tegund (Species)
Kattartunga (Plantago maritima)