Heiðastör (Carex heleonastes)

Útbreiðsla

Mjög sjaldgæf. Hún hefur aðeins fundist á austanverðu Norðurlandi og virðast aðalheimkynni hennar vera í flóum Fljótsheiðarinnar.

Búsvæði

Vex í rennblautum flóum og mýrum.

Lýsing

Meðalhá stör (15–40 sm) með löngum blágrænum blöðum og nær hnöttóttum öxum.

Blað

Myndar gisnar þúfur. Blöð löng og blágræn, styttri en stráið, mjó, 1–2 mm á breidd. Strá bein og upprétt, skarp-þrístrend með uppvísandi broddum á köntunum, mjög snörp, hvassstrend og ójöfn efst (Hörður Kristinsson, Lid og Lid 2005).

Blóm

Axskipan þétt, öxin standa 2-4 saman á stráendanum. Grábrún, egglaga eða nær hnöttótt öx. Toppaxið stærst, karlblóm neðst í öxunum. Axhlífar brúnar og yddar með breiðum himnufaldi og ljósri eða grænni miðtaug, örlítið styttri en hulstrin. Hulstur 2,5–3,5 mm löng, grágræn með lítt áberandi taugum og stuttri trjónu (Hörður Kristinsson, Lid og Lid 2005).

Greining

Öxin á heiðastörinni líkjast í fljótu bragði öxum rjúpustararinnar en eru þó heldur bústnari og dekkri. Þrístrent stráið er einnig mjög snarpt af niðurvísandi broddum á köntum þess. Heiðastörin er einnig hávaxnari og uppréttari en rjúpustörin sem aldrei vex í flóum. Heiðastör vex heldur ekki í toppum heldur á strjáli.

Válistaflokkun

VU (tegund í nokkurri hættu)

ÍslandHeimsválisti
VU DD

Forsendur flokkunar

Heiðastör flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem stofninn er talinn lítill og telji færri en 1000 fullþroska einstaklinga auk þess sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 9 km2.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Heiðastör er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Válisti 1996: Heiðastör er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Verndun

Heiðastör er friðuð samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Lid, J. og D.T. Lid. 2005. Norsk flora (7. útg.). Ritstj. Reidar Elven. Det Norske Samlaget, Oslo.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Einkímblöðungar (Liliopsida)
Ætt (Family)
Stararætt (Cyperaceae)
Tegund (Species)
Heiðastör (Carex heleonastes)