Blátoppa (Sesleria albicans)

Útbreiðsla

Sjaldgæf, aðeins fundin á nokkru svæði á höfuðborgarsvæðinu og í næsta nágrenni. Hefur fundist á tveim stöðum utan höfuðborgarsvæðisins, á Fagurhólsmýri og utan í Tófuhorni við Hvalnes í Lóni. Vaxtarstaðirnir á Suðausturlandi gætu bent til þess að blátoppan hafi borist þangað til landsins með fuglum, en á höfuðborgarsvæðinu hefur hún án efa vaxið mjög lengi. Blátoppan hefur átt undir högg að sækja, bæði vegna útþenslu byggðarinnar og vegna þéttrar lúpínubreiðu sem leggur undir sig vaxtarsvæði hennar.

Búsvæði

Vex í mólendishöllum, gras- og lyngmóum, utan í og uppi á ásum.

Lýsing

Meðalhá grastegund (15–60 sm) með stuttum, brúnum axleitum punti. Blómgast í maí–júní.

Blað

Blaðsprotar með alllöngum, 2–4 mm breiðum blöðum, samanbrotnum að endilöngu. Slíðurhimnan örstutt (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Blómin í stuttum (1,5–2 sm), langegglaga, þéttum, axleitum punti. Smáöxin tvíblóma. Axagnir 4–5 mm langar, himnukenndar, glærar með dökkri broddyddri miðtaug. Neðri blómögn breið, fimm- til sjötauga, bláfjólublá ofan til og myndar miðtaugin stuttan bláan brodd upp úr smáaxinu (Hörður Kristinsson 2010).

Aldin

Aldinið er hneta þar sem fræskurn og aldinhýði er runnið saman í eitt (Lid og Lid 2005).

Greining

Líkist engri annarri íslenskri tegund.

Válistaflokkun

VU (tegund í nokkurri hættu)

ÍslandHeimsválisti
VU NE

Forsendur flokkunar

Greinileg fækkun fundarstaða hefur verið skráð á suðvestanverðu landinu undanfarin ár en það ásamt ofangreindum ástæðum eru ástæður þess að blátoppa flokkast sem tegund í nokkurri hættu.

Viðmið IUCN: B1, 2ab(ii,iii,iv)

B1. Útbreiðsla áætluð minni en 100 km2

B2. Dvalar- eða vaxtarsvæði áætlað minna en 10 km2 og mat bendir til:
a. Útbreiðsla stofns er mjög slitrótt.
b. Stofn hefur sífellt minnkað samkvæmt athugun, ályktun eða áætlun eftirfarandi þriggja þátta;
(ii) dvalar- eða vaxtarsvæðis,
(iii) stærðar, umfangs og/eða gæða búsvæðis,
(iv) fjölda fundarstaða eða undirstofna.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Blátoppa er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Válisti 1996: Blátoppa er á válista í hættuflokknum VU (í yfirvofandi hættu).

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Lid, J. og D.T. Lid. 2005. Norsk flora (7. útg.). Ritstj. Reidar Elven. Det Norske Samlaget, Oslo.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Körfublómaætt (Asteraceae)
Tegund (Species)
Blátoppa (Sesleria albicans)