Skógvist
Tímamörk
Rannsóknir fóru fram 2002–2006, 2015 og 2024.
Samstarfsaðilar
Skógvistarverkefnið er unnið að tilstuðlan Lands og skógar. Auk Náttúrufræðistofnunar taka Landbúnaðarháskóli Íslands, Náttúrustofa Norðurlands vestra og Háskólinn á Akureyri þátt í verkefninu.
Um verkefnið – Markmið og verkþættir
Náttúrufræðistofnun tekur þátt í verkefninu Skógvist þar sem gerðar eru rannsóknir á lífríki, jarðvegseiginleikum og kolefnishringrás í gróðursettum skógum. Samskonar mælingar eru jafnframt gerðar í náttúrulegum birkiskógum og mólendi til samanburðar.
Rannsóknin beinist að fimm hópum lífvera: jarðvegsdýrum, hryggleysingjum á yfirborði, sveppum og fléttum, plöntum og varpfuglum. Rannsóknarsvæðin eru á Fljótsdalshéraði á Austurlandi og í Skorradal og Norðurárdal á Vesturlandi. Á þessum svæðum voru gerðar mælingar í gróðursettum lerki-, stafafuru- og sitkagreniskógum, sem og í náttúrulegum birkiskógum á mismunandi aldri. Til samanburðar voru einnig gerðar mælingar í beittu mólendi.
Niðurstöðurnar veita mikilvægar upplýsingar um þróun lífríkis eftir aldri og tegund skóga. Gögnin hafa jafnframt nýst til að meta áhrif eldgosa, svo sem Holuhraunsgossins, á jarðveg og gróðurfar.
Mælingar í verkefninu fóru fram á árunum 2002–2006 á Austurlandi og Vesturlandi, árið 2015 á Austurlandi og síðast sumarið 2024 á Vesturlandi, þegar reitir í Skorradal voru endurmældir og starfsfólk Náttúrufræðistofnunar rannsakaði þar gróður og fugla.
Nánari upplýsingar
Niðurstöður
Dæmi um greinar sem gefnar hafa verið út:
Edda Sigurdís Oddsdóttir, Ásrún Elmarsdóttir, Járngerður Grétarsdóttir og Bjarni Diðrik Sigurðsson 2017. Áhrif Holuhraunsgossins á gróður á Fljótsdalshéraði. Í: Áhrif Holuhraunsgossins á umhverfi og heilsu, ritstjórar Bjarni Diðrik Sigurðsson og Gerður Stefánsdóttir. Rit LbhÍ nr. 83, bls. 87-91.
Bjarni Diðrik Sigurðsson, Gunnhildur E. Gunnarsdóttir, Ásrún Elmarsdóttir, Borgþór Magnússon & Edda S. Oddsdóttir 2017. Mælingar á sýrustigi jarðvegs í mólendi og skógum á Fljótsdalshéraði fyrir og eftir Holuhraunsgosið. Í: Áhrif Holuhraunsgossins á umhverfi og heilsu, ritstjórar Bjarni Diðrik Sigurðsson og Gerður Stefánsdóttir. Rit LbhÍ nr. 83, bls. 92-95.
Ásrún Elmarsdóttir, Bjarni D. Sigurðsson, Edda Sigurdís Oddsdóttir, Arne Fjellberg, Bjarni E. Guðleifsson, Borgþór Magnússon, Erling Ólafsson, Guðmundur Halldórsson, Guðmundur A. Guðmundsson, Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, Kristinn Haukur Skarphéðinsson, María Ingimarsdóttir og Ólafur K. Nielsen 2011. Áhrif skógræktar á tegundaauðgi. Náttúrufræðingurinn, 81(2): 69-81.
Ásrún Elmarsdóttir, Bjarni D. Sigurðsson, Edda Sigurdís Oddsdóttir, Arne Fjellberg, Bjarni E. Guðleifsson, Borgþór Magnússon, Erling Ólafsson, Guðmundur Halldórsson, Guðmundur A. Guðmundsson, Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, Kristinn Haukur Skarphéðinsson, María Ingimarsdóttir og Ólafur K. Nielsen 2010. Áhrif skógræktar á tegundafjölda planta, dýra og sveppa. Niðurstöður SKÓGVISTAR-verkefnisins (pdf). Fræðaþing landbúnaðarins 2010, bls. 253-265.
Edda Sigurdís Oddsdóttir, Ásrún Elmarsdóttir, Bjarni Diðrik Sigurðsson, 2008. Líffræðilegur fjölbreytileiki í kjölfar skógræktar. Ársskýrsla 2007, Skógræktar ríkisins; 28-31.
Edda Sigurdís Oddsdóttir, Arne Fjellberg, Ásrún Elmarsdóttir og Guðmundur Halldórsson, 2008. Áhrif skógræktar með mismunandi trjátegundum á tíðni og fjölbreytileika mordýra (Collembola) (pdf). Fræðaþing Landbúnaðarins 2008; 103-110.
Edda Sigurdís Oddsdóttir, Auður Sveinsdóttir, Ásrún Elmarsdóttir, Bjarni Diðrik Sigurðsson, Jón Geir Pétursson, Ólafur Eggertsson og Guðmundur Halldórsson, 2008. AFFORNORD – áhrif nýskógræktar á vistkerfi, landslag og byggðaþróun (pdf). Fræðaþing Landbúnaðarins 2008; 409-412.
Bjarni Diðrik Sigurðsson, Ásrún Elmarsdóttir, Brynhildur Bjarnadóttir og Borgþór Magnússon, 2008. Mælingar á kolefnisbindingu mismunandi skógargerða (pdf). Fræðaþing landbúnaðarins 2008; 301-308.
Harald Sverdrup, Salim Belyzaid, Ásrún Elmarsdóttir, Borgþór Magnússon og Bjarni D. Sigurðsson, 2008. Modelling ground vegetation changes. In : Affornord. Effects of afforestation on ecosystems, landscape and rural development. TemaNord 2008: 562, p. 49-55.
Proceedings of the Affornord conference 2007: Effects of afforestation on ecosystems, landscape and rural development. Kaupmannahöfn, Nordic Council of Ministers. TemaNord 508.
Bjarni Diðrik Sigurðsson og Ásrún Elmarsdóttir, 2006. Áhrif skógræktar á lífríki og jarðveg. Í: Skógarbók. Grænni skóga. Alhliða upplýsingarit um skógrækt á Íslandi. Guðmundur Halldórsson (ritstj.). Landbúnaðarháskóli Íslands 2006, bls. 111-115.
Bjarni Diðrik Sigurðsson, Ásrún Elmarsdóttir og Borgþór Magnússon. 2005. Áhrif skógræktar á sýrustig jarðvegs og gróðurfar. Fræðaþing landbúnaðarins 2005; 303-306.
Bjarni D. Sigurdsson, Borgthor Magnusson, Asrun Elmarsdottir & Brynhildur Bjarnadottir 2005. Biomass and composition of understory vegetation and the forest floor carbon stock across Siberian larch and mountain birch chronosequences in Iceland. Annals of Forest Science 62. 881–888.
Ólafur K. Nielsen 2003. SKÓGVIST: Mófuglar og skógarfuglar á Héraði 2002 (pdf). NI-03010. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. 21 bls.
Tengiliður
Járngerður Grétarsdóttir, gróðurvistfræðingur.