Grasmítill (Bryobia praetiosa)

Útbreiðsla

Útbreiddur um heim allan.

Ísland: Dreifingin er óskráð.

Lífshættir

Grasmítill finnst í mestum mæli á grasflötum í görðum og byggð. Hann leggst á fjölmargar tegundir plantna og sýgur úr þeim safa, ekki síst grös, smára (Trifolium), túnfífla (Taraxacum) og ýmsar aðrar blómplöntur. Þeir dafna best á grasflötum sem fá góða áburðargjöf svo gras vaxi af krafti. Grasmítlar verða hvað algengastir þegar líða tekur á vor.

Almennt

Grasmítillinn er illa liðinn þegar hann birtist á vorin, skríður í hersingum upp úr grasrótinni við húsveggi, upp eftir veggjum og jafnvel áfram inn um opna glugga. Þar safnast hann stundum fyrir gluggakistum til óþrifa og leggst jafnvel á pottablómin. Oft safnast grasmítlar í rifur með hurðarkörmum og í falsa opnanlegra glugga. Meiri fjöldi sækir á húsveggi sem vita mót sól en á skuggamegin, ekki síst þar sem vöxtulegur gróður vex með veggjum. Grasmítlar eru sjaldnast til skaða fyrir gróðurinn. Þegar mítillinn er sprengdur með snertingu myndast rauður blettur eða taumur sem þarf að þvo af með sápuvatni. Því skal aldrei þurrka af gluggakistum með tusku, öllu heldur nota ryksugu við mítlaþrif.

Grasmítill (0,8 mm) er rauður eða rauðbrúnn á lit, þeir yngri rauðari en fullþroska. Oft sést dekkra invols í bolnum út í gegnum yfirborðið. Framfætur grasmítils eru miklu lengri en aðrir fætur, teygjast langt fram fyrir bolinn og líkjast þannig fálmurum skordýra.

Heimildir

Wikipedia. Bryosia praetiosa. https://en.wikipedia.org/wiki/Bryobia_praetiosa

Höfundur

Erling Ólafsson 14. febrúar 2017.

Ríki (Kingdom)
Dýr (Animalia)
Fylking (Phylum)
Liðdýr (Arthropoda)
Undirfylking (Subphylum)
Klóskerar (Chelicherata)
Flokkur (Class)
Áttfætlur (Arachnida)
Ættbálkur (Order)
Flosmítlar (Prostigmata)
Tegund (Species)
Grasmítill (Bryobia praetiosa)