Ullargæra (Anthrenocerus australis)

Útbreiðsla

Ástralía, Nýja-Sjáland, Mið-Evrópa, Bretland, Noregur.

Ísland: Seltjarnarnes, Reykjavík, Hafnarfjörður.

Lífshættir

Ullargæra lifir innanhúss. Hún lifir á ullar- og skinnavörum, einnig þurrkuðum mjólkurvörum eins og ostefni (casein), mikilvægu mjólkurprótíni sem meðal annars er notað í ostagerð. Tími kynslóðar er uppgefinn 9-12 mánuðir svo gera má ráð fyrir að ein kynslóð á ári sé eðlilegur gangur. Lirfurnar þurfa minnst sex mánuði til uppvaxtar. Púpustig varir í 2-3 vikur og skríða bjöllur úr púpum á vorin og sumrin í upprunalegum heimkynnum. Þær leita út og sækjast þar eftir blómasafa. Lífshættir ullargæru hér á landi eru lítt þekktir en gera má ráð fyrir að svipað eigi við hér og annars staðar þar sem tegundin lifir innanhúss. Reyndar hafa fullorðnar bjöllur fundist hér á landi frá lokum janúar fram í miðjan maí sem er í nokkru ósamræmi við ofanskráð. Bjöllurnar eru vel fleygar og svipað og annars staðar sækja þær markvisst út í bjarta glugga til að komast út. Ullargæra telst skaðvaldur á heimilum. Í Nýja-Sjálandi hefur hún þróað með sér ónæmi fyrir skordýraeitri.

Almennt

Ullargæra er upprunnin í Ástralíu. Þar er hún útbreidd, einnig á Nýja-Sjálandi. Hún hefur dreifst til landa Mið-Evrópu, einnig Bretlands og Noregs þar sem hún hefur fundist í Bergen. Árið 2009 fundust ókunnuglegar gærubjöllur á heimili á Seltjarnarnesi, fullorðin bjalla og lirfur. Þær héldu svo áfram að koma fram í húsinu næstu árin og árið 2016 kvað rammt að þeim. Þær fundust í fata- og eldhússkápum, einnig á gólfum og í gluggum. Ekkert varð við ráðið. Ári síðar fannst tegundin einnig í gömlu húsi í Reykjavík og svo í Hafnarfirði 2019 þar sem hún hafði líkast til dafnað í gömlu gólfteppi í langan tíma. Tók það nokkur ár að komast að því hver tegundin var enda þessi ástralska tegund lítt þekkt í Evrópu.

Ullargæra (2,5 mm) er lítil þykk og kubbsleg gærubjalla. Skelin er dökkbrún, með grófum hvítum og gylltum hárum, sem mynda mynstur bugðóttra randa þvert yfir skjaldvængina og með dekkri hárlausum blettum á milli. Hálsskjöldur með samskonar lituðum hárum. Mynstur Hárin skafast auðveldlega af og verður mynstrið þá óreglulegra. Höfuð og fætur eru lítt áberandi, dyljast að mestu inn undir bolnum. Þrír ystu liðir fálmara mynda keilu. Lirfa er áberandi liðskipt með gulbrúnar bakplötur og ljósari himnukennd samskeyti þeirra. Með hliðum eru hárabrúskar úr mjög löngum og styttri hárum og enn styttri örvaroddahárum sem lengjast aftur eftir og á afturenda eru langir brúskar. 

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

NRK (Natur). (https://www.nrk.no/natur).

Taranaki Educational Resource – Research Analysis And Information Network. (http://www.terrain.net.nz/friends-of-te-henui-group/local-insects).

Ríki (Kingdom)
Dýr (Animalia)
Fylking (Phylum)
Liðdýr (Arthropoda)
Undirfylking (Subphylum)
Sexfætlur (Hexapoda)
Flokkur (Class)
Skordýr (Insecta)
Ættbálkur (Order)
Bjöllur (Coleoptera)
Ætt (Family)
Gærubjallnaætt (Dermestidae)
Tegund (Species)
Ullargæra (Anthrenocerus australis)