Kornbjalla (Tribolium castaneum)

Útbreiðsla

Upprunnin í hitabeltislöndum, útbreidd um heim allan.

Ísland: Reykjavík, Hafnarfjörður, Akranes, Laugarvatn, Ísafjarðardjúp og Stöðvarfjörður.

Lífshættir

Kornbjalla finnst innanhúss. Bæði fullorðnar bjöllur og lirfur nærast á mjölvöru af flestu tagi, bæði unninni og heilum fræjum. Ertur og baunir eru einnig á matseðlinum, kryddvörur og þurrkaðir ávextir og flest það sem skápurinn með bökunarvörunum hefur upp á að bjóða. Tegundin er hitakær, með kjörhita um eða yfir 30°C, æxlast ekki undir 18°C og deyr jafnvel út af sjálfu sér ef hitastig fer svo langt niður. Hún er afar frjósöm við kjörhita og fjölgar sér hratt jafnvel við stofuhita. Í tilraun sem gerð var við stofuhita næstum tuttugufaldaðist fjöldinn á einum mánuði.

Almennt

Kornbjalla fannst fyrst hérlendis árið 1933 en hefur átt erfitt uppdráttar. Hún telst því ekki alvarlegt meindýr hjá okkur, en í einstöku tilvikum hefur hún þó náð sér nokkuð vel á strik. E.t.v. finnst hún helst í kjölfar þess að sýktir mjölfarmar berast til landsins.

Kornbjalla er lítil, mjó, staflaga, rauðbrún eða kastaníurauð á lit og líkist mjög sterkjubjöllu (T. confusum). Hún þekkist frá henni á því að þrír ystu liðir fálmara mynda keilu sem aðgreinist frá öðrum liðum.

Útbreiðslukort

Heimildir

Åkerlund, M. 1991. Ängrar – finns dom ...? Om skadeinsekter i museer och magasin. Naturhistoriska riksmuseet og Svenska museiföringen, Stokkhólmi. 207 bls.

Geir Gígja 1939. Nýjar skordýrategundir fyrir Ísland. Skýrsla um Hið ísl. náttúrufræðifélag 1937–38: 36–38.

Larsson, S.G. & Geir Gígja 1959. Coleoptera 1. Synopsis. Zoology of Iceland III, Part 46a. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 218 bls.

Mourier, H. 1995. Husets dyreliv. G.E.C. Gads Forlag A/S, Kaupmannahöfn. 223 bls.

Höfundur

Erling Ólafsson 14. ágúst 2009, 2. janúar 2023

Ríki (Kingdom)
Dýr (Animalia)
Fylking (Phylum)
Liðdýr (Arthropoda)
Undirfylking (Subphylum)
Sexfætlur (Hexapoda)
Flokkur (Class)
Skordýr (Insecta)
Ættbálkur (Order)
Bjöllur (Coleoptera)
Ætt (Family)
Mjölbjölluætt (Tenebrionidae)
Tegund (Species)
Kornbjalla (Tribolium castaneum)