Farmkakkalakki (Periplaneta americana)
Útbreiðsla
Útbreiddur um heim allan, en upprunninn í hitabelti Afríku.
Ísland: Fundinn á allnokkrum stöðum, víðast hvar sem tilfallandi slæðingur; Reykjavík, Keflavíkurflugvöllur, Grindavík, Akranes, Stykkishólmur, Sauðárkrókur, Akureyri, Egilsstaðir, Eskifjörður.
Lífshættir
Farmkakkalakk lifir alfarið innanhúss sem afar hvimleitt meindýr og leggst á flest sem tönn á festir, spillir og óhreinkar. Þar má telja matvörur af öllu tagi, dauð dýr og plöntur, leður, lím, veggfóður, textílvörur og hvaðeina sterkjuríkt. Auk þess að éta og naga óhreinkar hann mikið með saur sínum og illum þef. Farmkakkalakkar makast 1–5 vikum eftir að fullorðinsstigi er náð. Egghulstur myndast utan um eggjamassa 3–7 dögum eftir mökun. Slík myndast með 4–12 daga millibili. Við kjörskilyrði (28°C) verður fjölgun gífurleg eins og glöggt má skilja þegar tölulegar staðreyndir eru skoðaðar. Tegundin er einnig ágætlega sátt við íslenskan stofuhita. Eftir að kynþroska er náð lifir farmkakkalakki a.m.k. 100 daga og jafnvel allt að 700 daga, kvendýr ívið lengur en karldýr. Hvert kvendýr framleiðir 10–84 egghulstur á æviskeiðinu sem hvert eitt inniheldur 14–16 egg. Venjulega skilar kvendýrið hulstri frá sér á innan við sólarhring, en það getur þó tekið nokkra daga. Við rúman stofuhita klekjast eggin á 58 dögum en mun skemur við hærri hita.
Almennt
Farmkakkalakki hefur einnig verið kallaður ameríski kakkalakkinn. Hann fannst hér nokkrum sinnum á fyrri hluta 20. aldar, fyrst 1915 og svo reglulega eftir miðja öldina. Hann varð þar með alltíður slæðingur með varningi til landsins og hefur sennilega náð fastri búsetu þó ekki sé hann algengur. Hitakröfur hans eru slíkar að kaldar vöruskemmur eru ólíklegar til að hýsa hann til langframa. Hann þarf því að finna sér aðsetur í upphituðu húsnæði. Tegund þessi var talin hafa verið föst í sessi á Keflavíkurflugvelli á meðan herstöðin var starfrækt þar með amerískum her.
Farmkakkalakki er með stærstu skordýrum, flatvaxinn rauðbrúnn á lit, hálsskjöldur með ljósari umgjörð. Leðurkenndir yfirvængir með grófgerðu æðamynstri ná aftur fyrir bolinn. Ungviði hefur aðeins litla vængvísa. Fálmarar eru afar langir og mjóir, lengri en bolurinn, fætur alsettir sterkum göddum. Stutt liðskipt halaskott vita út á við. Farmkakkalakki er einkar snar í snúningum og snöggur að koma sér í felur ef óvænt styggð ber að.
Útbreiðslukort
Heimildir
Åkerlund, M. 1991. Ängrar – finns dom ...? Om skadeinsekter i museer och magasin. Naturhistoriska riksmuseet og Svenska museiföringen, Stokkhólmi. 207 bls.
Bjarni Sæmundsson 1931. Nýjungar úr dýraríki Íslands. Skýrsla um Hið ísl. náttúrufræðisfélag 1929–30: 32–39.
Geir Gígja 1934. Kakalakar (Blattoidea). Náttúrufræðingurinn 4: 75–80.
Tuxen, S.L. 1938. Orthoptera and Dermaptera. Zoology of Iceland III, Part 38. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 5 bls.
Höfundur
Erling Ólafsson 14. ágúst 2009, 20. nóvember 2013
Biota
Biota
Lífríki (Biota)
Almennt
Elsta steingerða lífveran á jörðinni er um 3,6 milljarða ára og fyrir um 600 milljónum ára voru allar helstu megindeildir lífheimsins komnar fram, svonefnd ríki (Kingdoms): dreifkjörnungar (Procaryota), einfrumungar (Protista), sveppir (Fungi), plöntur (Plantae) og dýr (Animalia), einnig nefnd vefdýr.
Síðustu áratugina hefur skilningi á þróunarsögu lífs fleygt fram, einkum vegna rannsókna á erfðamengi tegunda og bættra tölfræðiaðferða við að leiða líkum að innbyrðis skyldleika þeirra. Líklegasta þróunarsagan er táknuð með skyldleikatré (cladogram), sem er prófanlegt líkan eða nálgun að margbrotinni atburðarás. Flokkunarkerfin endurspegla hinsvegar aðeins helstu og best þekktu tegundahópana, en þó þannig að hver tegundahópur endurspeglar sameiginlegan uppruna útfrá einni sameiginlegri móðurtegund. Rótin á flokkunartrénu samsvarar lífríkinu og uppruna alls lífs, sem greinist í sífellt smærri ættmeiða, allt til tegunda.
Tegundir eru samsafn áþekkra lífvera sem eru gerðar úr einni eða fleiri frumum. Allar lífverur afla sér næringar til viðurværis, þær geta að nokkru leyti brugðist við og lagað sig að breyttum aðstæðum og eignast smávægilega arfbreytt afkvæmi í eigin mynd. Náttúruval hefur valdið því að lítilsháttar arfgengur einstaklingsmunur hefur í tímans rás, orðið að þeirri gjá sem aðgreinir helstu fylkingar og flokka núlifandi tegunda.
Flokkunarfræðingar hafa sammælst um að auðkenna tegundahópa með svonefndu flokkunarstigi (taxonomical rank) til að staðsetja hópa innan þróunartrésins. Rót flokkunartrésins samsvarar lífheiminum, eða öllum tegundum jarðar, sem síðan greinist í sífellt smærri flokkunarheildir: lén (domain), ríki (kingdom), fylkingar (phylum), flokka (class), ættbálka (order), ættir (family), ættkvíslir (genus) og tegundir (species). Algengt er að flokkunarstigin séu mun fleiri ef kvíslgreining þróunar er vel þekkt, einkum innan tegundaríkra flokkunarheilda. Flokkunarstigin eru eingöngu hugsuð sem afstæð röðun tegundahópa eftir sama ættmeið innan þróunartrésins, en að öðru leyti eru flokkunarstigin gagnólík. Þannig er til dæmis engin náttúruleg samsvörun milli ranabjölluættarinnar (Curculionidae) með 50.000 tegundir og mannættarinnar (Hominidae), með sex tegundir, ásamt Homo sapiens.
Flokkunarfræði
Viðfangsefni flokkunarfræðinnar er að leiða líkum að þróunarsögu tegunda og flokka eftir uppruna. Yfirleitt gerður greinarmunur á skyldleikafræði (systematics), flokkunarfræði (taxonomy) og nafngiftafræði (nomenclature). Almennt er litið svo á að viðfangsefni skyldleikafræðinnar séu að skýra fjölbreytni lífs í ljósi þróunar. Flokkunarfræðin fæst við afla gagna um tegundir, lýsa þeim og skipa í flokkunarkerfi (classification) í samræmi við líklegasta þróunartréð. Enginn skarpur greinarmunur er á skyldleikafræði og flokkunarfræði og algengt að þessi heiti séu notuð jöfnum höndum, nánast í sömu merkingu. Hinsvegar hefur nafngiftafræðin skýrt tæknilegt markmið um að þróa og innleiða staðlað alþjóðlegt regluverk um nafngiftir tegunda og flokkunarheilda, eftir stigskiptu kerfi (hierachical system). Reynslan sýnir að hirðuleysi í flokkunarfræðilegum nafngiftum veldur allskyns misskilningi og þvælist fyrir eðlilegri þekkingaröflun. Með nafngiftareglunum er þó alls engin afstaða tekin til fræðilegra kenninga í skyldleika- eða flokkunarfræði.
Flokkunarkerfi eru stundum aðlöguð í ýmsum tilgangi, til dæmis þegar tegundir eru flokkaðar eftir búsvæðum, vistfræðilegu mikilvægi, fæðuvali eða flokkunin jafngildir greiningarlykli. Slík hentiflokkun (nominalism; arbitrary classification) hefur það meginmarkmið að þjóna þörfum notenda á sem skilvirkastan hátt. Slík flokkun byggist á fyrirfram völdum upplýsingum samkvæmt áhugasviði eða þörfum notenda og getur stangast óþyrmilega á við aragrúa arfgengra sérkenna sem afmarka náttúrulega tegundahópa sem eiga sér sameiginlegan uppruna.
Markmið svonefndrar upprunaflokkunar (phylogenetic systematics) er að leiða líkum að kvíslgreiningu þróunar, sem er táknað með skyldleikatré (cladogram). Kvíslgreining þróunartrésin, eða ættmeiðamyndunin, er reiknuð útfrá gagnasafni um sameiginleg sérkenni fjölda tegunda og er nálgun eða líkan af raunsönnum þróunarvenslum.
Hver flokkunarheild getur verið ein eða fleiri tegundir og er það táknað sem sjálfstæð grein á skyldleikatrénu. Náttúrulegir tegundahópar innihalda alla afkomendur frá einni og sömu móðurtegundinni. Slíkir hópar eru sagðir einættaðir (monophyletic). Vanættaðir hópar (paraphyletic) eru flokkunarheildir sem innihalda aðeins suma en ekki alla afkomendur sameiginlegs áa. Fjölættaðir hópar (polyphyletic) innihalda tvær eða fleiri fjarskyldar móðurtegundir og eftir atvikum aðeins suma af afkomendum þeirra. Bæði van- og fjölættuðum tegundahópum er hafnað sem tilviljanakenndri hentiflokkun.
Upprunaflokkun
Skordýrafræðingurinn Willi Hennig (1913-1976) er einn af frumkvöðlum upprunaflokkunar (phylogenetic systematics), en hún byggist á nokkrum einföldum grunnatriðum. Hennig færði rök fyrir því að einu nothæfu vísbendingarnar um þróunarskyldleika tegunda væru hverskyns afleidd sérkenni sem hafa erfst í breyttri mynd meðal allra afkomenda frá einum sameiginlegum forföður. Slík sérkenni nefndi hann hópkenni (synapomorphy). Tilurð slíkra afleiddra sérkenna má yfirleitt skýra sem ummyndun á frumstæðum eiginleika, sem hann nefndi frumkenni (symplesiomorphy). Frumkennið vísar því til eiginleika tegunda innan mun víðtækari flokkunarheildar en þeirrar sem er til athugunar hverju sinni. Hugtökin hópkenni og frumkenni eru því afstæð í þeim skilningi að þau vísa til upprunaskyldra eiginleika meðal flokkunarheilda sem samsvara kvíslgreiningum á þróunartrénu: þannig sitja hópkenni ofar í þróunartrénu en samsvarandi frumkenni eru neðar. Dæmi um hópkenni gæti til að mynda verið fjórir ganglimir af þeirri gerð sem einkennir hópinn ferfætlinga (Tetrapoda). Margt bendir til að slíkir ganglimir séu ummyndaðir uggar á fiskum, sem væru þá frumkenni ganglima, en það einkennir víðtækar flokkunarheild á þróunartrénu sem er neðan við hópinn ferfætlinga. Á sama hátt eru vængir leðurblaka ummyndaðir ganglimir og eru því vísbending um sameiginlegan uppruna allra leðurblaka – í þessu tilviki er frumkennið „ganglimir ferfætlinga“ og þar fyrir ofan á trénu er hópkennið „leðurblökuvængir“. Þannig er haldið áfram að leita sífellt fleiri hópkenna og afhjúpa tré sem endurspeglar kvíslgreiningu þróunar.
Nú er það svo í reynd að allar gagnaskrár um ætluð hópkenni tegunda (putative synapomorphies) innihalda einhverjar mótsagnir um sameiginlegan uppruna þeirra. Dæmi um það er gagnaskráin á meðfylgjandi mynd. Tegundir A og B, hafa hópkennið x’ en ekki tegund C sem hefur frumkennið x. Það bendir til að tegundir A+B hafi báðar erft x’ í umbreyttri mynd frá sameiginlegum forvera og tilheyri því einættuðum hóp sem tegund C er ekki hluti af (sjá mynd, tré 1). Hinsvegar hafa tegundir B og C hópkennin y’ og z’, sem eru aljöfn (congruent) þar sem bæði styðja tilgátuna um að B+C myndi einættaðan hóp sem tegund A er ekki hluti af (sjá mynd, tré 2). Það eru því tvöfalt fleiri hópkenni sem benda til að tegundir B+C séu innbyrðis skyldari en A+B. Ef tré (2) reynist rétt þá kallar það á aukatilgátu sem segir að hópkennið x’ sé í raun sýndarlíking (homoplasy) sem myndaðist í tveimur sjálfstæðum skrefum við þróun tegunda A og B. Sýnt hefur verið fram á að þróunartré sem lágmarkar fjölda sýndarlíkinga, eins og tré (2), er jafnframt það líklegasta á grundvelli tiltekins gagnasafns.
Gögn yfir hópkenni tegunda, eins og kirnaraðir gena, eða líkamsgerð, geta verið gríðarlega umfangsmikil. Þróaðar hafa verið tölfræðiaðferðir til að finna líklegasta þróunartréð fyrir gagnasöfn af ýmsum toga. Í grófum dráttum má skipta þessum aðferðum í tvennt. Annarsvegar eru þær sem byggjast á einföldunargildi (parsimony criterion) og hinsvegar þær sem styðjast við þróunarlíkön, sem aftur eru tvenns konar; í fyrsta lagi aðferð mesta sennileika (maximum likelihood) og hinsvegar aðferðir sem byggjast á bayesískum líkindareikningi. Reyndar eru nafngiftir á þessum aðferðum nokkuð villandi, vegna þess að einföldunaraðferðin (parsimony) tilheyrir einnig flokki tölfræðiaðferða sem eru kenndar við mesta sennileika.
Samrunaþróun og takmörk upprunaflokkunar
Síðustu áratugina hafa þróunartré að verulegu leyti byggst á gögnum um byggingu prótína og gena. Slíkar upplýsingar hafa til að mynda umbylt flokkun blómplantna og dregið fram áður hulinn skyldleika meðal dýra, en jafnframt rennt styrkari stoðum undir viðteknar hugmyndir um skyldleika stærri flokkunarheilda. Þróunartré sem grundvallast á einu eða fleiri genum eru gjarnan kölluð genatré (gene tree). Í ljós hefur komið að mismunandi gen veita misvísandi upplýsingar um skyldleika tegunda svipað og þekkt er með hefðbundin líkamseinkenni eins og beinabyggingu, vöðva, blóðrásarkerfi og fleira. En genin hafa einnig varpað ljósi á furðulegt og áður óþekkt fyrirbrigði, sérstaklega í þróun örvera.
Hefðbundin flokkunarkerfi byggjast á því að hver flokkunarheild og tegund geti aðeins verið upprunnin af einum móðurstofni. Almennt hefur ekki verið gert ráð fyrir að ættmeiðar sem hafa eitt sinn aðgreinst, gætu runnið saman síðar í þróunarsögunni. Hver tegund er því mögulega upphafið að nýjum ættmeið, algerlega einangrað og óháð fjarskyldari flokkunarheildum. Þannig virtist sem þróuninni væru sett ákveðin mörk. Það heyrði til undantekninga að nýjar tegundir yrðu til á einni kynslóð við kynblöndun fjarskyldra tegunda, þótt slík samrunaþróun (reticulate evolution) hafi löngum verið kunnuglegt úrlausnarefni við flokkun ýmissa plantna. Flokkun slíkra blendingstegunda skapar töluverð vandkvæði í hefðbundnum flokkunarkerfum sem eru hugsuð til að endurspegla kvíslgreind þróunartré. Talið var að örverur fylgdu sama kvíslgreinda þróunarferli og dýr og plöntur. Genarannsóknir hafa leitt í ljós að uppruni frumulíffæra á borð við hvatbera og grænukorn verður best útskýrður með samrunaþróun, þar sem örverur af mismunandi tegundum runnu saman í fyrndinni og urðu hlutar af nýjum tegundum. Samhliða því fluttust gen úr erfðamengjum grænukorna og hvatbera inn í erfðamengi viðkomandi „hýsiltegunda“. Þróunarsaga grænukorna og hvatbera á sér því sjálfstæða þróunarsögu áður en þau urðu hlutar af nýjum tegundum og ættbogum.
Síðustu áratugina hefur komið sífellt betur í ljós að bakteríutegundir geta skipst á genum. Þess háttar genaflakk eða láréttur genaflutningur (lateral / horizontal gene transfer) hefur að nokkru marki átt sér stað milli fjarskyldra flokkunarheilda og virðist hafa skipt umtalsverðu máli í þróun örvera. Þegar gen flyst úr einni tegund og yfir í aðra fjarskylda tegund, þá flytjast með aðskotageninu þær stökkbreytingar sem urðu innan upprunalegs ættmeiðs. Að þessu leyti hafa þróunarsögur tveggja ættmeiða runnið saman. Til að greina samrunaþróun af þessum toga meðal örvera er lesið úr mörgum genum, oft heilum erfðamengjum. En samrunaþróun varpar nýju ljósi á merkingu hugtaksins tegund. Til dæmis samanstendur genamengi saurgerilsins Escherichia coli af um 4.288 genum, en uppruna 755 þeirra má skýra sem genaflakk úr fjarskyldum tegundum raunbaktería síðustu 100 ármilljónirnar. Uppruna hvatbera í heilkjörnungum má rekja til svonefndra alfa-dreifkjörnunga og sennilegast eru grænukorn plantna komin af blágrænuþörungum. Slík samrunaþróun fellur ekki vel að kvíslgreindu þróunartré, með einangruðum ættmeiðum sem mynduðust fyrst við aðskilnað tegunda. Þó er sennilegt að verulega hafi dregið úr vægi samrunaþróunar meðal fjölfruma dýra og plantna, en fjölfrumungar urðu ekki til fyrr en tiltölulega langt var liðið á þróunarsögu lífsins. Ái allra lífvera var því ef til vill ekkert eitt lífsform né heldur ákveðinn afmarkaður ættmeiður. Hugsanlega var það samfélag allskyns dreifkjörnunga sem skiptust á genum og þróuðust sem misjafnlega einangraðir hlutar innan sömu heildar. Smám saman varð genaflakk tiltölulega fátíðara milli afmarkaðra hópa þegar hver og einn aðlagaðist að mismunandi umhverfisskilyrðum og myndaði sérhæfða líkamsgerð og lífsmáta, sem samsvara núlifandi flokkunarheildum raunbaktería, fornbaktería og heilkjörnunga. En í reynd er það varla svo að þessar niðurstöður kollvarpi algerlega viðteknum hugmyndum lífsins tré, þó að vissulega breyti þær undirstöðum þess og varpi nýju ljósi á rætur þróunarsögunnar.
(gg@ni.is)
Myndir
Höfundur
Guðmundur Guðmundsson 28.janúar 2016
- Ríki (Kingdom)
- Dýr (Animalia)
- Ríki (Kingdom)
- Dýr (Animalia)
- Fylking (Phylum)
- Liðdýr (Arthropoda)
- Fylking (Phylum)
- Liðdýr (Arthropoda)
- Undirfylking (Subphylum)
- Sexfætlur (Hexapoda)
- Undirfylking (Subphylum)
- Sexfætlur (Hexapoda)
- Flokkur (Class)
- Skordýr (Insecta)
- Flokkur (Class)
- Skordýr (Insecta)
- Ættbálkur (Order)
- Kakkalakkar og termítar (Dictyoptera)
- Ættbálkur (Order)
- Kakkalakkar og termítar (Dictyoptera)
- Ætt (Family)
- Farmkakkalakkaætt (Blattidae)
- Ætt (Family)
- Farmkakkalakkaætt (Blattidae)
- Tegund (Species)
- Farmkakkalakki (Periplaneta americana)
Dýr (Animalia)
Almennt
Dýr eru fjölfruma heilkjörnungar (Eucaryota) með ýmsa sérhæfða frumuvefi og líffæri sem aðrar lífverur hafa ekki, til að mynda taugar og vöðva. Flest bendir til að allar dýrategundir myndi einættaða flokkunarheild (monophyletic group), þ.e. að uppruni þeirra er rakinn til einnar og sömu móðurtegundarinnar. Nánasti ættingi dýra eru kragafrumungar (Choanoflagellata), en það eru einfrumungar sem mynda laustengt sambýli margra einstaklinga. Hin sameiginlega formóðir allra vefdýra og núlifnandi kragafrumunga var uppi fyrir rúmlega 600 milljón árum, eða á ofanverðu forkambríum.
Öll dýr eru ófrumbjarga og afla sér næringar með því að taka til sín lífræna fæðu með ýmsum hætti. Þótt slíkur lífsmáti einkenni dýr, þá þekkist hann einnig meðal annarra lífvera, til að mynda gerla og sumra plantna sem veiða dýr sér til viðurværis. Ófrumbjarga lífsmáti er því afar frumstæður eiginleiki, í þeim skilningi að hann varð til og þróaðist löngu fyrir tilurð dýra.
Núlifandi dýr skiptast í um 35 fylkingar (Phylum), sem flestar aðgreindust í þróunarsögunni við upphaf kambríum, fyrir 541 milljón árum. Allflestar þessara fylkinga eiga sér fulltrúa í íslenskri náttúru. Langsamlega tegundaríkasta fylkingin er liðdýr, en þar á meðal eru skordýr, krabbadýr og fleiri fjölskrúðugir undirhópar. Af öllum þekktum tegundum jarðar, þá eru um 82% liðdýr, en þar á eftir eru lindýr, með um 6% tegundanna. Áætla má að heildarfjöldi dýrategunda í heiminum séu um 7,7 milljónir, en þar af er aðeins búið að uppgötva rúmlega 1,6 milljón. Þótt aðeins lítill hluti dýrategunda sé þekktur, þá er nokkuð víst að hlutfallsleg skipting þeirra milli fylkinga liggi fyrir í megindráttum.
Íslenskar dýrategundir skipta þúsundum. Á landi og í ferskvatni eru þekktar rúmlega 2.000 tegundir og innan íslenskrar efnahagslögsögu er vitað um ríflega 2500 tegundir. Heildarfjöldinn er þó eflaust margfalt meiri, enda eru fjölmargir tegundaauðugir dýrahópar í íslenskri náttúru lítt rannsakaðir.
(gg@ni.is)
Heimildir
1.Zhang, Z-Q. (2013). Animal biodiversity: An update of classification and diversity in 2013. Zootaxa, 3703: 5-11.
2.Lecointre, G. & Le Guyader, H. 2006. The tree of life, Harvard Univ. Press, London.
3. Mora C, Tittensor DP, Adl S, Simpson AGB, Worm B (2011). How Many Species Are There on Earth and in the Ocean? PLoS Biol 9(8): e1001127.doi:10.1371/journal.pbio.1001127
4. https://en.wikipedia.org/wiki/Animal (ath.27.1.2016)
Höfundur
Guðmundur Guðmundsson 27.janúar 2016, 28.janúar 2016
Liðdýr (Arthropoda)
Almennt
Liðdýr er fylking hryggleysingja með ytri stoðgrind, liðskiptan bol og liðskipta fætur. Stoðgrindin er gerð úr kítíni, stundum að nokkrum hluta úr kalki. Stoðgrindin heftir vöxt og hafa dýrin því hamskipti á vaxtarskeiðum. Að grunni til hefur hver liður bolsins par útlima sem þróast hafa á ótal vegu. Á liðum sem mynda höfuð hafa útlimirnir myndað munnlimi, á frambol ganglimi, einnig á afturbol nema útlimir öftustu liða sem taka þátt í myndun kynfæra. Þetta byggingarform hefur boðið upp á óþrjótandi möguleika á þróunarbrautinni og leitt til þess að liðdýr er langsamlega tegundaríkasta fylking dýraríkisins og hýsir um 80% allra dýrategunda sem lýst hefur verið. Liðdýr finnast nær hvarvetna á jörðinni, frá þurrustu auðnum á landi niður í hafdjúpin. Þó stærðarmunur sé mikill þá setur líkamsgerðin stærðinni takmörk. Þar ræður ytri stoðgrind miklu svo og loft- og efnastreymi um líkamann sem fer fram í opnum líffærakerfum. Stærstu liðdýrin lifa í sjó.
Höfundur
Erling Ólafsson 16. nóvember 2015
Sexfætlur (Hexapoda)
Almennt
Sexfætlur skipa undirfylkingu liðdýra með glögglega þrískiptan bol, þrjú pör ganglima á frambol en enga á afturbol að undanskildum leifum útlima sem enn koma fyrir hjá tegundum í frumstæðum ættbálkum skordýra. Öll önnur liðdýr hafa fleiri fætur að grunni til. Sexfætlur skiptast í tvo flokka, holtanna (Entognatha) og skordýr (Insecta). Áður voru holtannar staðsettir í flokki skordýra.
Höfundur
Erling Ólafsson 14. desember 2017.
Skordýr (Insecta)
Almennt
Skordýr hafa þrískiptan bol sem skiptist í höfuð, frambol og afturbol. Á höfði eru tveir fálmarar og tvö samsett augu. Frambolur er gerður úr þrem samgrónum liðum, samskeytin oft ógreinileg. Á honum eru þrjú pör fóta, eitt á hverjum lið, oftast tvö pör vængja, annað á miðlið hitt á afturlið, vængir stundum ummyndaðir, stundum hefur annað parið, jafnvel bæði, þróast burt. Frumstæðustu skordýr hafa aldrei haft vængi. Þeir koma fram síðar á þróunarleiðinni. Afturbolur er að grunni til gerður úr 11 liðum. Liðskiptingin er greinileg, þó sjaldnast sjáist merki um alla grunnliðina. Þeir öftustu hafa oftast tekið þátt í að móta kynfæri og aðrir kunna að vera samgrónir. Afturbolur er án útlima að undanskildum leifum fóta á frumstæðustu formum.
Skordýr eru afar mikilvæg í náttúrunni og nauðsynleg í ýmsum ferlum, s.s. niðurbroti lífrænna efna og frævun blóma. Þau eru lífsnauðsynleg fæða fyrir aragrúa dýra og jafnvel plöntur. Skordýr eru ómissandi í vistkerfum lands og ferskvatns og er þjónusta þeirra við vistkerfin bráðnauðsynleg fyrir afkomu mannsins.
Skordýr eru tegundaríkasti flokkur dýra í heiminum. Flokkun þeirra er í stöðugri þróun jafnt á plani tegunda sem hærri flokkunareininga. Sem stendur eru ættbálkar skordýra í heiminum 27 talsins. Yfir milljón tegundum skordýra hefur verið lýst sem er helmingur þekktra tegunda lífvera. Talið er að tegundirnar séu í raun á bilinu 6-10 milljónir og að um 90% dýrategunda séu skordýr. Á Íslandi hafa fundist fulltrúar 19 ættbálka. Um 1.375 tegundir eru landlægar eða gestir hér fyrir eigið tilstilli. Um 280 tegundir sem slæðst hafa til landsins með innfluttum varningi hafa verið nafngreindar. Nokkrar tegundir hafa átt hér tímabundna búsetu.
Höfundur
Erling Ólafsson 16. nóvember 2015
Kakkalakkar og termítar (Dictyoptera)
Almennt
Kakkalakkar (Blattodea) og termítar (Isoptera) voru til skamms tíma sjálfstæðir ættbálkar en sameindalíffræðin hefur sýnt fram á það náinn skyldleika að þessir tegundahópar skuli hafa stöðu undirættbálka innan ættbálksins Dictyoptera. Um skeið voru bænabeiður (Mantodea) einnig hafðar undir sama hatti sem undirættbálkur en horfið hefur verið frá því og halda þær fyrri stöðu sinni sem fullgildur ættbálkur þó skyldleikinn sé ótvíræður. Heiti ættbálksins er dregið af grísku orðunum dictyon=net og pteron=vængur. Erfitt er að hrófla við gömlu íslensku ættbálkaheitunum svo rótgróin sem þau eru. Engin hefð hefur komist á eitt sameiginlegt íslenskt heiti á ættbálkinn Dictyoptera.
Kakkalakkar eru frekar stórir og jafnvel mjög stórir og forneskjulegir. Bolurinn er flatvaxinn og sporöskjulaga ofan frá séð. Hálsskjöldur stór og tiltölulega flatur, hylur fremsta lið frambols alveg að ofan og nær aftur yfir vængrætur. Leðurkenndir framvængir hylja afturbol og ná stundum aftur fyrir hann, stundum mun styttri. Himnukenndir afturvængir samanbrotnir undir framvængjum. Sumar tegundir hafa tapað afturvængjunum og enn aðrar eru vængjalausar með öllu. Þá sést þrískipting frambols mjög vel. Haus tiltölulega lítill, kýttur inn undir hálsskjöldinn, með mjög langa og granna fálmara. Fætur eru fremur langir með mörgum göddum. Tvö stutt, lensulaga, liðskipt skott. Kvendýr verpa eggjum í egghulstrum sem ungviðið klekst síðan úr, nokkur fjöldi úr hverju hulstri. Kakkalakkar eru ýmist plöntuætur eða alætur. Þrjátíu tegundir eru þekktar úr húsakynnum og eru sumar þar til óþurfta. Í heiminum eru um 4.600 tegundir kakkalakka þekktar. Í Evrópu eru 4 ættir, 3 ættir hafa fundist á Íslandi, 2 tegundir eru taldar landlægar, 8 nafngreindar tegundir hafa borist til landsins með varningi.
Termítar eru einnig þekktir undir heitinu hvítmaurar en það heiti er villandi. Þó termítum og maurum svipi til hvað samfélög þeirra varðar þá er skyldleikinn fjarlægur. Termítar eru alkunn samfélagsskordýr. Samfélögin samanstanda af frjóum drottningum og karldýrum, ófrjóum þernum sem annast búskapinn og dátum sem tryggja varnir bús og samfélags. Termítar nærast einkum á dauðum rotnandi plöntuleifum í sverði og jarðvegi eða í dýrasaur. Sumir naga þurran trjávið. Termítar gegna einkar mikilvægu hlutverki í vistkerfum heitari landa með því að hraða niðurbroti plöntuleifa. Samfélög termíta eru afar misstór allt frá nokkrum hundruðum upp í milljónir einstaklinga. Engin skordýr lifa jafnlengi og termítadrottningar en þær geta náð allt að 50 ára aldri. Búin eru mikil undraverk, nánast verkfræðileg undur. Þau sem mesta athygli vekja eru feiknastór, að miklum hluta neðan jarðar á meðan háir stakkar skaga upp úr jörðinni allt að fimm metra eða meira. Þau eru gerð úr leir og jarðvegi, útbúin með sjálfvirkum loftskiptum, hita- og rakastýringu. Búin eru annars afar breytileg, oft að mestu neðanjarðar og ná rétt upp úr yfirborði, sum eru alveg ofanjarðar en þó með snertingu við jörð, önnur eru inni í holum viði trjáa eða bygginga. Termítar eru afar mikilvæg fæða fyrir fjölda sérhæfðra dýrategunda og einnig fyrir suma þjóðflokka frumbyggja. Þá eru einhver hundruð tegunda skaðvaldar á ökrum og í uppskeru og sumir geta valdið umtalsverðum skemmdum á húsum og húsgögnum. Í heiminum eru þekktar um 3.600 tegundir termíta Í Evrópu finnast aðeins 12 tegundir sem flokkast í þrjár ættir. Þeir finnast ekki á Norðurlöndunum nema sem slæðingar. Á Íslandi lifa þeir ekki heldur en hafa fundist sem slæðingar í tvígang. Fyrra tilfellið er nafnlaust.
Höfundur
Erling Ólafsson, 30. nóvember 2015, 31. október 2022.
Farmkakkalakkaætt (Blattidae)
Almennt
Ættin er útbreidd um heim allan og eru um 600 tegundir þekktar í um 40 ættkvíslum. Í Evrópu finnast aðeins 4 tegundir í 2 ættkvíslum.
Flestar tegundir eru meðalstórar til stórar, 10-30 mm, brúnar, svartar, rauðar á lit, nokkrar skærgrænar. Sumar hafa áverandi litabelti og flekki. Bolurinn flatvaxinn og háll. Langliðir fóta alsettir sterkum burstum allt um kring, lærliðir aðeins á neðra borði. Nær allar tegundir eru ófleygar þar sem flugvængi vantar undir leðurkennda stóra framvængina. Kvendýr með gróft plóglaga varptól á afturenda og þykk vítt aðskilin hliðstæð liðskipt skott (cerci). Kynplata karldýra samhverf og með tveim mjóum staflaga álmum. Til hliðar eru auk þess þykku liðskiptu skottin. Kakkalakkarnir eru alætur.
Sumar tegundanna eru meindýr sem geta valdið fjárhagslegu tjóni hjá fyrirtækjum og spjöllum á matvælum á heimilum, að ógleymdum óþrifunum sem þeir valda og almennum leiðindum.
Hér á landi er ein tegund talin landlæg. Einnig berst hún hingað með varningi. Þrjár aðrar tegundir eru tilfallandi slæðingar með innfluttum vörum.
Höfundur
Erling Ólafsson 8. febrúar 2017.