Soragerla (Drosophila repleta)

Útbreiðsla

Um heim allan nema á köldustu slóðum.

Ísland: Reykjavík, Hafnarfjörður, Þingvallasveit.

Lífshættir

Á norðurslóðum lifir tegundin í húsum eða í nálægð þeirra þar sem hiti myndast í rotnandi plöntuúrgangi. Lirfur hafa einnig fundist í sveppum. Annars þrífst hún best í óþrifum, t.d. í gripahúsum og á sóðalegum salernum.

Almennt

Soragerla fannst fyrst hérlendis í Reykjavík  árið 2006. Þá kom upp fjöldi flugna í íbúð og leituðu þar í ljós og matarafganga. Í kjölfarið fylgdu fleiri tilfelli í eldhúsum í Reykjavík og Hafnarfirði og í vinnslusal verksmiðju. Í Grasagarðinum í Laugardal gaus upp mikill fjöldi flugna úr safnhaugskassa með grænmetisúrgangi til jarðvegsgerðar. Hefur einnig fundist við sumarhús í Þingvallasveit og gæti þar hafa tengst safnhaugskössum með garðúrgangi.

Soragerla (2-3 mm) er smávaxin eins og gerflugur almennt. Bolurinn er nokkuð þykkur, samanrekinn, höfuð með stórum áberandi rauðum augum. Grunnlitur er drapplitur en bolurinn er alsettur dökkum flekkjum og yrjum.

Útbreiðslukort

Heimildir

Baechli, G., C.R. Vilela, S. Andersson Escher & A. Saura 2004. The Drosophilidae (Diptera) of Fennoscandia and Denmark. Fauna Entomologica Scandinavica 39. Brill, Leiden Boston.

Höfundur

Erling Ólafsson 5. október 2017.

Ríki (Kingdom)
Dýr (Animalia)
Fylking (Phylum)
Liðdýr (Arthropoda)
Undirfylking (Subphylum)
Sexfætlur (Hexapoda)
Flokkur (Class)
Skordýr (Insecta)
Ættbálkur (Order)
Tvívængjur (Diptera)
Ætt (Family)
Gerflugnaætt (Drosophilidae)
Tegund (Species)
Soragerla (Drosophila repleta)