Gistifluga (Helina annosa)

Útbreiðsla

Evrópa til N-Skandinavíu, Miðausturlönd, Asía, N-Ameríka.

Ísland: Land allt, jafnt láglendi sem hálendi.

Lífshættir

Gistifluga finnst við afar fjölbreytt skilyrði enda einkar hreyfanleg. Hún er hvað algengust í blómlendi, mólendi og skóglendi, einnig í húsagörðum. Sækir á blóm og blómsveipi, t.d. hvannsveipi. Lífshættir eru lítið þekktir en talið er að lirfurnar lifi á ránum í jarðvegi. Gistifluga liggur án efa í dvala sem fullorðin. Hún gerir gjarnan vart við sig á hlákutímum á veturna, sækir þá á húsveggi sem sólargeislar ná að verma eða inn í hús. Hún fer á stjá á vorin fyrir alvöru þegar líða tekur á mars og er áberandi á þeim árstíma. Athygli vekur að aðeins kvenflugur sjást á vorin. Þær hverfa svo að mestu og verður gistiflugna lítið vart aftur fyrr en um miðjan júlí og upp úr því. Þá eru bæði kyn á ferli í miklum fjölda. Þegar líður að hausti hverfa karlflugurnar en kvenflugurnar sjást áfram fram eftir haustinu. Af þessu má dæma að aðeins kvenflugur leggist í dvala, frjóvgaðar, til þess að verpa að vetri liðnum. Uppvöxtur lirfanna fer því væntanlega fram fyrrihluta sumars.

Almennt

Gistifluga nefnist svo því á vorin og haustin sækir hún gjarnan inn í hús og líkar dvölin þar vel. Sama flugan getur verið á flögri innanhúss í marga daga ef ekkert er að gert. Margir telja að um húsflugu (Musca domestica) sé að ræða enda svipuð henni að stærð og sköpulagi. Hátternið er þó ólíkt. Gistifluga er nefnilega til friðs, sækir ekki í mat eða kássast upp á aðra íbúa hússins. Hún sækir gjarnan í gluggana og heldur sig þar langtímum. Húsflugurnar kviku forðast hins vegar glugga og opnar dyr og láta alls ekki reka sig á dyr, sækja á matardiska og í veisluföng, einnig í andlit fólks og ónáða við síðdegislúrinn.

Gistifluga er mjög hreyfanleg úti við og er líklegt að flugur sem finnast uppi á hálendi, á skerjum inni á jöklum og jafnvel í Surtsey suður í sjó hafi lagt í langferðir með hagstæðum vindum.

Gistifluga er að sköpulagi dæmigerð fluga af húsfluguætt (Muscidae) og er með þeim stærstu þeirrar ættar hérlendis. Henni verður varla lýst í almennum orðum þannig að hún verði þekkjanleg fyrir almennan flugnaskoðara.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Fauna Europea. Helina annosa. http://www.faunaeur.org/full_results.php?id=138969 [skoðað 12.5.2010]

Nielsen, P., O. Ringdahl & S.L. Tuxen 1954. Diptera 1 (exclusive of Ceratopogonidae and Chironomidae). Zoology of Iceland III, Part 48a. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 189 bls.

Höfundur

Erling Ólafsson 12. maí 2010

Ríki (Kingdom)
Dýr (Animalia)
Fylking (Phylum)
Liðdýr (Arthropoda)
Undirfylking (Subphylum)
Sexfætlur (Hexapoda)
Flokkur (Class)
Skordýr (Insecta)
Ættbálkur (Order)
Tvívængjur (Diptera)
Ætt (Family)
Húsfluguætt (Muscidae)
Tegund (Species)
Gistifluga (Helina annosa)