Rifsþéla (Nematus ribesii)

Útbreiðsla

Gjörvöll Evrópa, N-Ameríka. Upplýsingar liggja ekki fyrir um nákvæmari útbreiðslu.

Ísland: Reykjavík, Mosfellsbær; e.t.v. Hveragerði en óstaðfest (eintök liggja ekki fyrir).

Lífshættir

Rifsþéla sérhæfir sig á rifstegundir (Ribes) og étur laufblöð þeirra. Stikilsber (R. uva-crispa) er fyrsti valkostur en rauðberjarifs (R. rubrum) er einnig á matseðlinum og e.t.v. fleiri rifstegundir. Fullorðin dýr hafa fundist í júní og aftur í ágúst. Lirfur hafa fundist í kjölfar beggja flugtímanna. Augljóslega er um tvær kynslóðir að ræða. Sennilega liggur rifsþéla vetrardvalann á fullorðinsstigi og vaknar snemma sumars til að makast og verpa. Lirfurnar eru mikilvirk hraðvaxta átvögl.

Almennt

Rifsþéla er mjög nýlegur landnemi hér á landi. Það hefur ekki verið skráð hvenær hennar varð fyrst vart, en fyrstu fullorðnu eintökin í safni Náttúrufræðistofnunar eru frá sumrinu 2010. Tveim til þrem árum áður fór að berast til eyrna kvittur um afkastamikla meinsemd á rauðberjarifsi og ennfrekar á stikilsberjum. Runnar nær aflaufguðust og voru þar að verki ókunnuglegar lirfur. Náttúrufræðistofnun bárust slíkar lirfur til athugunar í ágúst 2010. Þær náðu að púpa sig og klekjast tiltölulega skömmu síðar. Rifsþélu virðist fara fjölgandi í görðum, skv. lýsingum sem heyrst hafa og á hún sennilega eftir að verða meiriháttar skaðvaldur á fæðuplöntum sínum og ganga afar hart að þeim. Þar er tegundinni reyndar þröngur stakkur skorinn. Hverju fram vindur fer eftir því hversu vel aðrar rifstegundir en stikilsber duga rifsþélunni til framdráttar, en stikilsber er mun fágætari tegund í ræktun í görðum okkar en t.d. rauðberjarifs og sólberjarifs (R. nigrum). Nýbúa þessum verður seint fagnað.

Rifsþéla er áþekk öðrum blaðvespum hvað stærð og heildarútlit varðar en hún er verulega frábrugðin þeim hinum á lit, einkum kvendýrin. Bæði kyn eru með dökkan haus að undanskilinni gulri vör undir dökku andliti og gulum baug yfir augum (meira áberandi á kvendýri). Á karldýri er frambolur dökkur nema framhornin gul, afturbolur dökkur að ofan og ljós að neðan, en breytilegt er hve hátt upp með hliðunum guli liturinn teygir sig. Á kvendýri er frambolur gulur nema bakplötur og kviðplötur dökkar, afturbolur hins vegar algulur. Fætur gulir á báðum kynjum.

Lirfan er ljósgræn, með gult belti fremst á frambol og annað aftarlega á afturbol, alsett dökkum dílum hver með einum dökkum, sterkum bursta. Haus svartur, einnig fætur, gangvörtur greinilegar á afturbol. Við síðustu hamskipti kastar lirfan svörtu dílunum og verður einlit, ljósgræn, þó með gulu beltunum á sínum stað og ljósan haus.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Encyclopedia of Live. Nematus ribesii. http://www.eol.org/pages/604185 [skoðað 6.7.2011]

Fauna Europaea. Nematus ribesii. http://www.faunaeur.org/full_results.php?id=355136 [skoðað 6.7.2011]

Höfundur

Erling Ólafsson 6. júlí 2011, 26. mars 2013, 30. janúar 2017

Ríki (Kingdom)
Dýr (Animalia)
Fylking (Phylum)
Liðdýr (Arthropoda)
Undirfylking (Subphylum)
Sexfætlur (Hexapoda)
Flokkur (Class)
Skordýr (Insecta)
Ættbálkur (Order)
Æðvængjur (Hymenoptera)
Ætt (Family)
Blaðvespnaætt (Tenthredinidae)
Tegund (Species)
Rifsþéla (Nematus ribesii)