Kornglæða (Ephestia kuehniella)

Útbreiðsla

Talin eiga uppruna að rekja til Miðjarðarhafslanda en hefur dreifst um heim allan með matvælum.

Ísland: Tilfallandi fundarstaðir í híbýlum og kornvörugeymslum. Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, einnig Sandgerði, Selfoss og Reykholt í Biskupstungum, í Reykholtsdal í Borgarfirði og við Steingrímsfjörð á Ströndum.

Lífshættir

Kornglæða finnst hér einvörðungu innanhúss enda lifir hún á matvælum okkar, kornmat allskonar, kexi, brauði, hnetum, súkkulaði, þurrkuðum ávöxtum, jafnvel hundamat og flestu öðru tilfallandi af þessu tagi. Kornglæða er því skaðvaldur í heimilishaldi. Fiðrildin fljúga allt árið. Í dagsbirtu halda þau mest kyrru fyrir en taka sig upp þegar skyggir. Fiðrildin sjálf nærast ekki. Þau leita sér að maka strax eftir að þau skríða úr púpu og taka sér drjúgan tíma í mökunina eða allt að 15 klukkustundir. Næstu tvær vikurnar fer varpið fram og getur kvendýrið verpt allt að 700 eggjum. Viðkoman er því snaggaraleg. Kornglæða þarf yfir 10°C til að fjölga sér en kemst ágætlega af við tiltölulega lágan húshita. Við 17°C klekjast eggin eftir átta daga og á skemmri tíma við hærri hita. Lirfan tekur strax að spinna silkiþræði og binda með þeim fæðuna í klumpa. Sýking í kornvöru leynir sér því ekki, þar sem hún hangir meira eða minna saman á spunanum. Lirfan vex tiltölulega hægt en við kjöraðstæður, 25°C og 75% raka, getur það tekið hana allt að 100 daga að ná fullum vexti og púpa sig. Lirfan þolir ágætlega mun lægra rakastig en við þurrari aðstæður tekur þroskinn lengri tíma. Einnig ræðst vaxtarhraði af fæðugerðinni. Fullvaxin lirfa skríður úr matvörunni og finnur sér fylgsni til að púpa sig. Þar spinnur hún um sig spunahjúp sem hún festir við undirlagið. Fiðrildi skríður úr púpu að tveim vikum liðnum við 17°C.

Kornglæða þolir ekki frost. Við -10°C drepast öll stig innan vikutíma og á einum sólarhring við -19°C. Frystikistan dugar því vel til að drepa kornglæðu í sýktri vöru.

Almennt

Kornglæða er án efa viðloðandi hér á landi en reglulega bætist í stofninn þegar sýkt kornvara berst til landsins. Hún fannst fyrst í Reykjavík þegar um miðja 20. öldina og kemur reglulega í leitir bæði á heimilum og í korngeymslum við Sundahöfn í Reykjavík.

Kornglæða er með algengari mölfiðrildum í heimilishaldi okkar. Tegundirnar eru margar hverjar áþekkar í útliti og það er ekki á hvers manns færi að þekkja þær í sundur. Það hjálpar ekki að fiðrildin slitna fljótt þegar þau taka að skríða um í grófri kornvöru og verða auðkennasnauð. Kornglæða er að mestu grá á lit en á ferskum eintökum má greinilega merkja dökka zikzak-línu yfir miðjuna á dýri með aðfellda vængi. Hún er einkar lík kakóglæðu (Ephestia elutella).

Útbreiðslukort

Heimildir

Åkerlund, M. 1991. Ängrar – finns dom ...? Om skadeinsekter i museer och magasin. Naturhistoriska riksmuseet og Svenska museiföringen, Stokkhólmi. 207 bls.

Wikipedia. Mediterranean Flour Moth. http://en.wikipedia.org/wiki/Mediterranean_Flour_Moth [skoðað 7.3.2012]

Wolff, N.L. 1971. Lepidoptera. Zoology of Iceland III, Part 45. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 193 bls.

Höfundur

Erling Ólafsson 7. mars 2012.

Ríki (Kingdom)
Dýr (Animalia)
Fylking (Phylum)
Liðdýr (Arthropoda)
Undirfylking (Subphylum)
Sexfætlur (Hexapoda)
Flokkur (Class)
Skordýr (Insecta)
Ættbálkur (Order)
Fiðrildi (Lepidoptera)
Ætt (Family)
Glæðufiðrildaætt (Pyralidae)
Tegund (Species)
Kornglæða (Ephestia kuehniella)