Skræðulús (Lepinotus patruelis)

Útbreiðsla

Heimsútbreiðsla skræðulúsar er illa skráð og hefur hún án efa yfirsést víða um heimsins lönd. Þekkt með vissu frá löndum í N- og M-Evrópu, N-Afríku og Argentínu.

Ísland: Í byggð víða um land.

Lífshættir

Skræðulús finnst hér innanhúss, eingöngu að telja má þó hún hafi í einu tilfelli fundist í raka á svölum timburhúss ásamt öðrum tegundum ryklúsa. Við slíkar aðstæður getur hún eflaust lifað yfir sumartímann, jafnvel í berki gamalla trjáa í húsagörðum, en vetrarveður útiloka að öllum líkindum frekari vist utanhúss. Í nágrannalöndunum finnst tegundin í einhverjum mæli í gripahúsum og utanhúss, t.d. í fuglshreiðrum. Ekki er því óhugsandi að hún geti fært sér í nyt starahreiður í húsþökum hér á landi.

Skræðulús er rakasækin og finnst ekki síst í gömlum húsum hvarvetna í skúmaskotum, á háaloftum og í kjöllurum, þvottahúsum, baðherbergjum og innréttingum margskonar, t.d. vaskskápum. Í sjálfu sér er skræðulúsin ekki mikill skaðvaldur. Hún sækir gjarnan í gamlar bækur sem varðveittar eru við óheppilegar aðstæður, t.d. í rökum geymslum, þar sem þær liggja öllu heldur undir skemmdum aðstæðnanna vegna. Einnig fer hún í matarkistur okkar, í mjölduft í skúffum og á hillum í matarbúrinu. Safnast í skjól undir gólflistum í baðherbergjum, þar sem rakastig er að öllu jöfnu hátt og sveppþræðir þrífast og dafna, en sveppþræðir (mygla) eru kjörfæða ryklúsa almennt. Oft má sjá skræðulýs og skyldar tegundir í gluggakistum þar sem raki þéttist og einkum og sér í lagi þar sem lakkmálning er tekin að flagna eða blómapottar standa með rakri moldinni. Þeir draga að sér ryklýs. Skræðulýs nýta sér til framdráttar það sem til fellur í híbýlum okkar og liggur þá þegar undir skemmdum án þess að þær séu skaðvaldurinn sjálfur.

Almennt

Nokkrar tegundir ryklúsa finnast í húsum okkar og er skræðulús ein af þeim eldri í hempunni, e.t.v. útbreiddust og hin dæmigerða ímynd ryklúsar. Hún leggur þó frekar undir sig eldri hús en hin yngri, en um þau situr parketlúsin (Dorypteryx domestica) öllu heldur. Skræðulús og skápalús (Liposcelis decolor) eiga gjarnan samvist.

Skræðulúsin agnarsmáa birtist okkur í ýmsum myndum. Kvendýrin eru öllu stærri en karldýrin og dekkri, allt að svarbrún, karldýrin ljósbrúnni og enn smærra ungviðið ljóst og fölt á lit. Fíngerð dýrin eru fótfrá og má gjarnan sjá þau á hröðum hlaupum í gluggakistum þegar styggð kemur að. Skræðulús er ófleyg, en kynþroska dýr þekkjast á egglaga vængstubbum aftan við fremsta lið frambols og liggja þeir aðskildir yfir fremsta hluta afturbols. Þá liggur einkennandi svart strik hliðlægt á höfði, frá auga fram á kjálka. Þessi einkenni má sjá í góðri stækkun.

Útbreiðslukort

Heimildir

Fauna Europaea. Lepinotus patruelis. http://www.faunaeur.org/full_results.php?id=169299 [skoðað 17.10.2012]

Fristrup, B. 1942. Copeognatha. Zoology of Iceland III, Part 41. Munksgaard, Kaupmannahöfn. 4 bls.

Geir Gígja 1944. Meindýr í húsum og gróðri og varnir gegn þeim. Prentsmiðjan Hólar hf, Reykjavík. 235 bls.

Svensson, B.W. & K. Hall. 2010. Nationalnyckeln till Sveriges flora och fauna. Stövslendor. Psocoptera. ArtDatabnken, SLU, Uppsala. 204 bls.

Höfundur

Erling Ólafsson 17. október 2012, 21. nóvember 2018

Ríki (Kingdom)
Dýr (Animalia)
Fylking (Phylum)
Liðdýr (Arthropoda)
Undirfylking (Subphylum)
Sexfætlur (Hexapoda)
Flokkur (Class)
Skordýr (Insecta)
Ættbálkur (Order)
Lýs (Psocodea)
Ætt (Family)
Skræðulúsarætt (Trogiidae)
Tegund (Species)
Skræðulús (Lepinotus patruelis)