Ylskotta (Thermobia domestica)

Útbreiðsla

Útbreitt um heim allan.

Ísland: Höfuðborgarsvæðið; Reykjavík, Mosfellsbær, Hafnarfjörður. Einnig Neskaupstaður.

Lífshættir

Ylskotta lifir alfarið innanhúss hér á landi eins og almennt á norðlægum slóðum. Hún er mjög hitakræf, en kjörhiti hennar er 37°C og æskilegt rakastig 76–85%. Hún er því mjög staðbundin í húsum við ofna eða heitavatnslagnir í kyndiklefum. Lágmarkshiti sem ylskotta fæst þrifist við er 25°C, en hún gerir heldur minni kröfur til raka en frænka hennar alkunna silfurskottan (Lepisma saccharina). Í nágrannalöndum okkar þrífst hún einna best í bakaríum og eldhúsum veitingahúsa, þar sem boðið er upp á kjöraðstæður. Ylskotta nærist á flestu sem inniheldur sykrur og sterkju, einnig prótínríkri fæðu, pappír, bókbandi og ýmsu tilfallandi. Yfirleitt veldur hún þó ekki teljandi skaða, telst frekar til óþurftar með nærveru sinni. Æxlunarhraði stjórnast af aðstæðum.

Við rétt hitastig (32–41°C) fara kvendýr að verpa 1,5 til 4,5 mánaða gömul og verpa allt að 200 eggjum á lífsskeiði sínu. Egg klekjast að 12–13 dögum liðnum. Þroskaferlið tekur því 2–4 mánuði sem þýðir nokkrar kynslóðir á ári. Ylskotta fjölgar sér því hratt við kjöraðstæður.

Almennt

Ylskotta fannst fyrst hér á landi árið 1983, í eldhúsi á tannlæknastofu í Brautarholti í Reykjavík. Tíu árum síðar finnst hún aftur í sama húsakjarna við Skipholt, en þangað hafði meindýraeyðir verið til kallaður til að vinna á silfurskottum. Síðan hefur ylskotta fundist víða í Reykjavík og nýlega í Hafnarfirði (2011). Hún er því eflaust komin til að vera í húsum okkar.

Ylskotta líkist silfurskottu, en er þó ívið stærri og grófgerðari, auk þess mun hærðari. Einnig er hún flikrótt, ekki eins jafnlit silfurgrá á lit og stalla hennar silfurskottan.

Útbreiðslukort

Heimildir

Åkerlund, M. 1991. Ängrar – finns dom ...? Om skadeinsekter i museer och magasin. Naturhistoriska riksmuseet og Svenska museiföringen, Stokkhólmi. 207 bls.

Erling Ólafsson 1996. Athyglisverð skordýr: Ylskotta. Náttúrufræðingurinn 65: 194.

Fauna Europaea. Thermobia domestica. http://www.faunaeur.org/full_results.php?id=91568 [skoðað 12.10.2011]

Mourier, H. 1995. Husets dyreliv. G.E.C. Gads Forlag A/S, Kaupmannahöfn. 223 bls.

Wikipetia. Firebrat. http://en.wikipedia.org/wiki/Firebrat [skoðað 12.10.2011]

Höfundur

Erling Ólafsson 12. október 2011, 18. maí 2017

Ríki (Kingdom)
Dýr (Animalia)
Fylking (Phylum)
Liðdýr (Arthropoda)
Undirfylking (Subphylum)
Sexfætlur (Hexapoda)
Flokkur (Class)
Skordýr (Insecta)
Ættbálkur (Order)
Kögurskottur (Zygentoma)
Ætt (Family)
Silfurskottuætt (Lepismatidae)
Tegund (Species)
Ylskotta (Thermobia domestica)