Sjósvala (Hydrobates leucorhous)

Útbreiðsla

Sjósvala verpur fyrst og fremst við Nýfundnaland og í Kyrrahafi. Langstærsta byggð hennar í Evrópu er talin vera í Vestmannaeyjum. Sjósvala er alger farfugl.

Stofnfjöldi

Sjósvölustofninn í Vestmannaeyjum var áætlaður um 200 þúsund pör árið 1991 (Erpur Snær Hansen o.fl. 2009). Allt sjósvöluvarp hér er nú innan mikilvægra fuglasvæða (sjá töflu) en talið er að fáein pör hafi stundum orpið annars staðar, t.d. í Ingólfshöfða. Rannsóknir í Elliðaey benda til þess að sjósvölum hafi fækkað um 40-49% milli 1991 og 2018 (Deakin et al 2021).

Válistaflokkun

EN (tegund í hættu)

ÍslandEvrópuválistiHeimsválisti
EN NT VU

Forsendur flokkunar

Kynslóðalengd (IUCN): 15,64 ár
Tímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir): 1991-2038

Sjósvala verpur nær eingöngu á einu svæði hér á landi en slíkum stofni gæti verið hætta búin af umsvifum manna eða af tilviljanakenndum atburðum, fyrirvaralítið einhvern tíma í framtíðinni og þannig komist í bráða hættu eða jafnvel dáið út á skömmum tíma. Sjósvölu hefur auk þess fækkað um 40-49% á síðustu árum sem framreiknað myndi samsvara 60-70% fækkun yfir viðmiðunartímabilið (1991-2038). Sjósvala telst því í hættu (EN, B2ab(v)).

Viðmið IUCN: B2ab(v)

B2. Stofn dvelur á mjög takmörkuðu svæði (<500 km2). 

a: Stofn dvelur á fáum stöðum (færri en 5)

b(v): Áframhaldandi fækkun í stofni einhverju 10 ára tímabili eða sem nemur þremur kynslóðum.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2000: Sjósvala var á válista sem tegund í nokkurri hættu (VU).

Válisti 2018: Sjósvala var á válista sem tegund í nokkurri hættu (VU).

Staða á heimsvísu

Sjósvala er talinn í nokkurri hættu (VU) á heimsválista.

Verndun

Sjósvala er friðuð samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

Mikilvæg svæði

Eitt svæði hér á landi (Vestmannaeyjar) eru mikilvægt svæði fyrir sjósvölu.

IBA viðmið – IBA criteria:

A4 ii: heimsstofn/global 66.667 pör/pairs (Bird­Life 2016)

B1 ii: Evrópa = 2.500 pör/pairs (BirdLife 2016)

Töflur

Mikilvæg sjósvöluvörp á Íslandi – Important colonies of Hydrobates leucorhous in Iceland.*

Svæði
Area
Svæðisnúmer
Area code
Árstími
Season
Fjöldi (pör)
Number (pairs)
Ár
Year
% af íslenskum stofni
% of Icelandic popul.
Alþjóðlegt mikilvægi
International importance
Vestmannaeyjar  SF-S_4 B 198.000 1991 100 A4ii, A4iii, B1ii
Alls–Total     198.000   100  
*byggt á Erpur Snær Hansen o.fl. 2009.

Myndir

Heimildir

BirdLife International 2016c. IUCN Red List for birds. http://www.birdlife.org [skoðað 20.10.2016].

Deakin, Z., Hansen, E.S., Luxmoore, R., Thomas, R.J., Wood, M.J., Padget, O., Medeiros, R., Aitchison, R., Ausden, M., Barnard, R. and Booth, V., 2021. Decline of Leach’s Storm Petrels Hydrobates leucorhous at the largest colonies in the northeast Atlantic. Seabird, 33, pp.74-106.

Erpur Snær Hansen, Broddi Reyr Hansen og Jóhann Óli Hilmarsson 2009b. Sjósvölutal Vestmannaeyja. Veggspjald kynnt á Líffræðiráðstefnunni, 6.–7. nóvember 2009, Öskju, Háskóla Íslands. http://www.nattsud.is/skrar/file/Erpur%20S%20Hansen%20ofl%202009%20Sj%C3%B3sv%C3%B6lutal%20Vestmannaeyja.pdf [skoðað 6. október 2016].

Höfundur

Kristinn Haukur Skarphéðinsson maí 2017, júní 2018, október 2018

Aldís Erna Pálsdóttir mars 2025

Ríki (Kingdom)
Dýr (Animalia)
Fylking (Phylum)
Seildýr (Chordata)
Flokkur (Class)
Fuglar (Aves)
Ættbálkur (Order)
Storkfuglar (Ciconiiformes)
Tegund (Species)
Sjósvala (Hydrobates leucorhous)

English Summary

Hydrobates leucorhous is a locally common breeding bird in Iceland with 198,000 pairs breeding at several sites in Vestmannaeyjar, S-Iceland, treated here as one colony of international importance.

Icelandic Red list 2025: Endangered (EN, B2ab(v)).