Auðnutittlingur (Acanthis flammea)

Útbreiðsla

Auðnutittlingur er útbreiddur varpfugl í norðlægum löndum. Hér verpur hann eingöngu í trjám og hefur fjölgað með aukinni trjá- og skógrækt (Einar Ó. Þorleifsson 2015). Auðnutittlingur er staðfugl en flakkar mikið um innanlands á vetrum.

Stofnfjöldi

Stofnstærð auðnutittlings hefur verið metin um 31.000 pör og byggist á þekktri útbreiðslu og þéttleika varpfugla eftir vistlendum (Kristinn Haukur Skarphéðinson o.fl. 2017). Eldri ágiskun var 10.000−30.000 pör (Asbirk o.fl. 1997). Grænlenskir auðnutittlingar fara hér um og hafa e.t.v. vetursetu. Íslenskir fuglar eru auðþekktir á útliti og mælingum en áhöld eru um hvort telja beri þá sem sérstaka deilitegund (Amouret o.fl. 2015, 2016). 

Dreifing og þéttleiki eftir vistlendum: Útbreiðsla auðnutittlings (sjá kort) endurspeglar fyrst og fremst dreifingu birkikjarrs líkt og útbreiðsla músarrindils. Varpkjörlendið eykst ár frá ári með stækkandi skógarreitum og vaxandi trjárækt, útbreiðslan er því örugglega vanskráð. Mest er af auðnutittlingum í skógvistum, 20,4 pör/km², eða 25.500 pör sem eru 82% af reiknuðum heildarstofni upp á 31.200 pör (Kristinn Haukur Skarphéðinsson o.fl. 2017). Um 22% auðnutittlinga reiknast innan mikilvægra fuglasvæða (sjá töflu).

Válistaflokkun

LC (ekki í hættu)

ÍslandEvrópuválistiHeimsválisti
LC LC LC

Forsendur flokkunar

Kynslóðalengd (IUCN): 2,46 ár
Tímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir eða 10 ár hvort sem er lengra): 2014-2024

Þótt auðnutittlingsstofninn sé ekki sérstaklega vel þekktur sýna vísitölur úr vetrarfuglatalningum mikla aukningu á undanförnum árum (sjá graf) og auk þess er hann það stór og dreifður að hann er talinn ekki í hættu (LC).

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2000: Auðnutittlingur var ekki í hættu (LC).

Válisti 2018: Auðnutittlingur var ekki í hættu (LC).

Verndun

Auðnutittlingur er friðaður samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

Mikilvæg svæði

Engin mikilvæg svæði eru skilgreind fyrir auðnutittling á Íslandi.

IBA viðmið – IBA criteria:

Engin/none

Töflur

Reiknaður fjöldi auðnutittlinga sem gæti orpið á þeim mikilvægu fuglasvæðum þar sem >1% íslenska stofnsins er að finna – Calculated number of breeding Carduelis flammea within important bird areas with >1% of the Icelandic population.*

Svæði
Area
Svæðisnúmer
Area code
Árstími
Season
Fjöldi (pör)
Number (pairs)
Ár
Year
% af íslenskum stofni
% of Icelandic popul.
Alþjóðlegt mikilvægi
International importance
Borgarfjörður–Löngufjörur FG-V_10 B 393 2013 1,3  
Suðurlandsundirlendi VOT-S_3 B 5.203 2013 16,7  
Önnur mikilvæg svæði
Other important areas
  B 1.106 2013 3,5  
Alls–Total     6.702   21,5  
*byggt á Náttúrufræðistofnun Íslands, óbirt gögn/unpubl.data

Myndir

Heimildir

Amouret, J., K. Steinauer, G.Þ. Hallgrímsson og S. Pálsson 2015. Evolutionary status of Icelandic Redpolls Carduelis flammea islandica (Aves, Passeriformes, Fringillidae). Journal of Ornithology 156: 1035–1048.

Amouret, J., G.Þ. Hallgrímsson, S. Pálsson og Y. Kolbeinsson 2016. Morphological differentiation of Icelandic Redpolls, Acanthis flammea islandica. Bird Study 63: 37–45.

Asbirk S., L. Berg, G. Hardeng, P. Koskimies og Æ. Petersen 1997. Population sizes and trends of birds in the Nordic countries 1978–1994. TemaNord 614. Kaupmannahöfn: Nordic Council of Ministers.

Einar Ó. Þorleifsson 2015. Fuglar í skógum. Auðnutittlingur (Acanthis flammea). Skógræktarritið 2015 (2): 79–81.

Höfundur

Kristinn Haukur Skarphéðinsson maí 2017, október 2018

Aldís Erna Pálsdóttir og Borgný Katrínardóttir mars 2025

Ríki (Kingdom)
Dýr (Animalia)
Fylking (Phylum)
Seildýr (Chordata)
Flokkur (Class)
Fuglar (Aves)
Ættbálkur (Order)
Spörfuglar (Passeriformes)
Tegund (Species)
Auðnutittlingur (Acanthis flammea)

English Summary

The Carduelis flammeapopulation in Iceland is estimated 31,000 pairs, based on measured densities in different habitat types and known and probable distribution; 22% may nest in IBAs designated for other species, but such areas are specifically designated for this species.

Icelandic Red list 2025: Least concern (LC).