Mýrelfting (Equisetum palustre)

Útbreiðsla

Algeng um allt land frá láglendi upp í 600 til 700 m hæð. Hana vantar á hærri og þurrari hlutum hálendisins. Hæst hefur hún fundist við Fögruhlíð við Langjökul í um 730 m hæð.

Búsvæði

Hún vex í mýrum og deiglendi, einkum í hallandi mýrum á láglendi og um neðanverðar hlíðar. Vex ekki í standandi vatni.

Lýsing

Meðalhá elfting (20–40 sm) með liðskipta stöngla og liðskiptar, kransstæðar greinar.

Blað

Sprotar mýrelftingarinnar vaxa upp af svörtum jarðstönglum sem eru liðskiptir, sívalir, gáraðir, grænir, með liðskiptum, kransstæðum greinum. Tennt slíður við hvern lið með 6-8 tönnum, slíðurtennur brúnar og himnurendar í oddinn. Greinar strjálar, vaxa einkum út frá liðum á miðjum stönglinum, vantar stundum að mestu eða eru fáar á hverjum lið, en stundum reglulega kransstæðar, oft stuttar, sljóstrendar með 4-6 köntum, uppréttar eða uppsveigðar. Greinarnar með fimm til sex gárum og jafnmörgum slíðurtönnum, brúnum í oddinn.

Blóm

Gróaxið í toppi grænu stönglanna, grænsvart að lit (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Líkist beitieski og klóelftingu. Mýrelfting þekkist frá klóelftingu á sljórri og fleiri köntum á greinunum, færri greinum og gróaxi á enda grænu sprotanna. Ólíkt beitieski hefur mýrelfting skarpari slíðurtennur, oftast fleiri greinar og engan odd upp úr gróaxinu eins og beitieskið.

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Elftingar (Equisetopsida)
Ætt (Family)
Elftingarætt (Equisetaceae)
Tegund (Species)
Mýrelfting (Equisetum palustre)