Gljástör (Carex pallescens)

Útbreiðsla

Mjög sjaldgæf stör á Íslandi, aðeins fundin á tveim stöðum, í brekku fyrir ofan Hvamm undir Eyjafjöllum, og á Ytri-Hrafnabjörgum í Hörðudal. Í Hvammi er mjög mikið af störinni, hún vex þar á stóru svæði um alla brekkuna ofan við bæinn. Á Ytri-Hrafnabjörgum er miklu minna af henni.

Búsvæði

Þurrar grasbrekkur.

Lýsing

Allhávaxin stör (20–60 sm) með græn, leggjuð kvenöx.

Blað

Myndar smá þúfur, án skriðulla jarðstöngla. Neðri blaðslíður loðin. Blöð flöt og ljósgræn, 2–4 mm breið, hærð á neðra borði. Strá hvassstrend, rúnnuð efst (Hörður Kristinsson 2010, Lid og Lid 2005).

Blóm

Gljástörin er með 2-3 græn, sívöl, leggjuð kvenöx og einu karlaxi í toppinn. Axhlífarnar eru ljósgulbrúnar eða grænleitar, með dekkri miðtaug sem gengur út í stuttan odd. Hulstrin eru græn, gljáandi, aflöng, snubbótt í endann, tauga- og trjónulaus. Neðsta stoðblað blómskipunarinnar er blaðkennt og nær langt upp fyrir öxin (Hörður Kristinsson 2010).

Válistaflokkun

CR (tegund í bráðri hættu)

ÍslandHeimsválisti
CR NE

Forsendur flokkunar

Gljástör er þekkt frá tveimur stöðum á landinu, annar á því vestanverðu en hinn undir Eyjafjöllum. Talið er nánast öruggt að gljástör sé horfin af fundarstaðnum á vestanverðu landinu og þrátt fyrir að stöðugur stofn sé til staðar á hinum fundarstaðnum telst tegundin í bráðri hættu.

Viðmið IUCN: B1; B2a+b(iv)

B1. Útbreiðsla áætluð minni en 100 km2
B2. Dvalar- eða vaxtarsvæði áætlað minna en 10 km2 og mat bendir til tveggja af þremur eftirtöldum atriðum:
a. Útbreiðsla stofns er mjög slitrótt eða takmörkuð við aðeins einn stað.
b. Stofn hefur sífellt minnkað samkvæmt athugun, ályktun eða áætlun eftirfarandi þáttar;
(iv) fjölda fundarstaða eða undirstofna.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Gljástör er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Lid, J. og D.T. Lid. 2005. Norsk flora (7. útg.). Ritstj. Reidar Elven. Det Norske Samlaget, Oslo.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Einkímblöðungar (Liliopsida)
Ætt (Family)
Stararætt (Cyperaceae)
Tegund (Species)
Gljástör (Carex pallescens)