Hárleggjastör (Carex capillaris)

Útbreiðsla

Hún er algeng um allt land frá láglendi upp í 600 m hæð. Hæst er hún fundin á Kiðagilshnjúk í 750 m hæð og Böggvisstaðafjalli við Dalvík í 700 m.

Búsvæði

Vex í deiglendi í móum, rökum klettasyllum, lækjarbökkum og snögggrónu raklendi yfir klöppum og annars staðar þar sem jarðvegur er grunnur.

Lýsing

Lágvaxin stör (8–25 sm) með tveim til þreim kvenöxum hangandi á hárfínum, löngum leggjum. Blómgast í júní.

Blað

Stráin sljóstrend, gárótt. Blöðin flöt, 1–2 mm breið neðan til, þrístrend í endann (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Tvö til þrjú kvenöx hangandi á hárfínum, löngum leggjum. Eitt lítið karlax. Kvenöxin eru lítil og fíngerð, ljósgræn í fyrstu en verða síðan ljósbrún. Axhlífar ljósbrúnar með hvítleitum, himnukenndum, slitróttum jöðrum. Hulstrið ljósbrúnt eða grænleitt, með alllangri trjónu, gljáandi, um 3 mm á lengd. Þrjú fræni (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Líkist toppastör sem hefur kvenblóm ofan til í endaaxinu og karlblóm neðst, kvenöxin eru brúnni, uppréttari og dreifast með lengra millibili um stöngulinn.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Einkímblöðungar (Liliopsida)
Ætt (Family)
Stararætt (Cyperaceae)
Tegund (Species)
Hárleggjastör (Carex capillaris)