Hnappstör (Carex capitata)

Útbreiðsla

Hún er algengari á landræna svæðinu á Norðausturlandi en annars staðar. Hún finnst frá láglendi upp í 600 m hæð, hæstu fundarstaðir á Kiðagils­hnjúk í 750 m hæð, Böggvisstaðafjalli við Dalvík í 700 m og Bíldsárskarði í Vaðlaheiði í 680 m.

Búsvæði

Vex í móum og þurru graslendi, oft í grasdældum, einnig oft í deiglendi yfir klöppum og annars staðar þar sem jarðvegur er grunnur.

Lýsing

Meðalstór stör (15–30 sm) með stuttu, gildu, hnapplaga axi í toppinn. Blómgast í júní.

Blað

Vex í þéttum toppum. Blöðin grönn (1 mm) og snarprend, virðast sívöl en eru grópuð eða samanbrotin (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Stutt, gilt, hnapplaga ax, 6–8 mm langt og 6–7 mm breitt. Karlblómin mynda smátrjónu í enda axins en kvenblómin eru neðar, í gildari hlutanum. Axhlífar brúnar í miðju en himnukenndar til jaðranna. Hulstrin græn og allbreið með langri trjónu. Tvö fræni (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Líkist engri annarri íslenskri tegund.

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Einkímblöðungar (Liliopsida)
Ætt (Family)
Stararætt (Cyperaceae)
Tegund (Species)
Hnappstör (Carex capitata)