Fitjasef (Juncus gerardii)

Útbreiðsla

Mjög sjaldgæft á Íslandi, aðeins fundið á tveim stöðum, í Leiruvogi í Mosfellsbæ og á Knarrarnesi við Eyjafjörð. Fundarstaðirnir og hin takmarkaða útbreiðsla gætu verið vísbending um að sefið hafi borist til landsins með skipakomum fyrr á öldum, þótt um það verði ekki fullyrt.

Búsvæði

Vex að jafnaði aðeins við sjávarstrendur.

Lýsing

Hávaxið sef (10–40 sm) með gulgræn blöð og beinvaxin strá, stoðblaðið styttra en blómskipanin.

Blað

Myndar þéttar eða gisnar breiður með skriðulum jarðstönglum. Blöðin gulgræn, lin, flöt eða nærri sívöl. Stráin bein og grönn með sívöl slíður (Lid og Lid 2005). Stoðblaðið styttra en blómskipanin (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Sefið hefur allmarga fáblóma blómhnoða. Blómhlífin er sexblaða, dökkrauðbrún, snubbótt, 2,5–4 mm löng (Lid og Lid 2005). Blómhlífarblöðin eru rauðbrún, stundum græn við mið-taugina, snubbótt í endann. Fræflar eru sex með gula frjóhnappa, ein rauð fræva.

Aldin

Aldinið er dökkbrúnt, á lengd við blómhlífina eða aðeins styttra. Blöðin eru grönn, rennulaga eða nær sívöl.

Greining

Skylt stinnasefi en með fleiri og fíngerðari blómhnoð, stoðblaðið styttra en blómskipanin.

Válistaflokkun

VU (tegund í nokkurri hættu)

ÍslandHeimsválisti
VU NE

Forsendur flokkunar

Fitjasef flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 1 km2 auk þess sem einungis tveir fundarstaðir eru þekktir.

Viðmið IUCN: D2

D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.
D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Fitjasef er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Válisti 1996: Fitjasef er á válista í hættuflokki CR (í bráðri hættu).

Verndun

Fitjasef er friðað samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Lid, J. og D.T. Lid. 2005. Norsk flora (7. útg.). Ritstj. Reidar Elven. Det Norske Samlaget, Oslo.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Einkímblöðungar (Liliopsida)
Ætt (Family)
Sefætt (Juncaceae)
Tegund (Species)
Fitjasef (Juncus gerardii)