Tryppanál (Juncus arcticus ssp. arcticus)

Útbreiðsla

Mjög algeng um allt land frá láglendi upp í 700–800 m hæð.

Búsvæði

Hálfdeigir bakkar, rakar sendnar áreyrar, jaðrar þurrlendis og votlendis (Hörður Kristinsson 2010).

Lýsing

Hávaxin planta (25–45 sm) með sívölum stráum og blómum í þéttum hnapp fyrir ofan miðju strásins. Blómgast í júní–júlí.

Blað

Hún hefur sterkan jarðstöngul sem skríður áfram ár frá ári. Stráin eru sívöl, nálarlaga, stælt, stinn, sívöl, hol, 1,5–2 mm í þvermál. Blöðin mynda slíður neðst á stönglinum en enga blöðku (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Nokkur blómhnoðu í þéttum hnapp sem virðast hliðstæð ofarlega á stráinu en í raun er það stoðblaðið sem blekkir. Það er sívalt með nálaroddi og stendur í beinu framhaldi af stráinu. Blómhlífin sexblaða. Blómhlífarblöðin odddregin, dökkbrún. Fræflar sex með gulgræna frjóhnappa. Frævan rauð með stuttum stíl og þrískiptu, bleiku fræni (Hörður Kristinsson 2010).

Aldin

Þrístrent og dökkbrúnt (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Líkist helst þráðsefi en hrossanálin þekkist á stæltari stráum og dekkri blómskipan, stoðblaðið er miklu styttra en stráið.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Einkímblöðungar (Liliopsida)
Ætt (Family)
Sefætt (Juncaceae)
Tegund (Species)
Tryppanál (Juncus arcticus ssp. arcticus)