Knjápuntur (Danthonia decumbens)

Útbreiðsla

Hefur aðeins fundist í Heimaey Vestmannaeyja, á tiltölulega litlu svæði innst í Herjólfsdal. Fræin dreifast með maurum þar sem þeir eru til staðar (Lid og Lid 2005).

Búsvæði

Grasbrekkur.

Lýsing

Fremur lágvaxin grastegund (10–40 sm), grágræn í þéttum þúfum, blöðin mjó með löngum hárum.

Blað

Blöðin eru blágræn, ójöfn, allstíf, flöt, mjó (2-3 mm breið), oft þétt saman og þúfumyndandi, með löngum, mjúkum hárum á blaðröndunum. Slíðurhimnan er ummynduð í hárkrans. Stráin stíf og knébeygð (Hörður Kristinsson, Lid og Lid 2005).

Blóm

Fremur grannur, fáblóma, ljósmóleitur puntur með uppréttum puntgreinum. Smáöxin eru fá, tiltölulega stór, stíf, gljáandi, 3-4 blóma. Axagnir eru 7-8 mm langar, svipaðar á lengd og allt smáaxið, blómagnir eru hærðar á jöðrum neðan til og klofnar í oddinn. Ytri blómögn jafnlöng eða lítið eitt lengri en restin af smáaxinu. Innri blómögnin þétthærð við grunninn, tvítennt í endann og með broddi milli tannanna (Hörður Kristinsson, Lid og Lid 2005).

Aldin

Aldinið er hneta þar sem fræskurn og aldinhýði er runnið saman í eitt (Lid og Lid 2005).

Válistaflokkun

EN (tegund í hættu)

ÍslandHeimsválisti
EN NE

Forsendur flokkunar

Knjápuntur hefur einungis fundist á einum stað á sunnanverðu landinu. Talið er að vaxtarsvæði tegundarinnar sé minna en 5000 m2.

Viðmið IUCN: D

D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Knjápuntur er á válista í hættuflokki EN (í hættu).

Válisti 1996: Knjápuntur er á válista í hættuflokki CR (í bráðri hættu).

Verndun

Knjápuntur er friðaður samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Lid, J. og D.T. Lid. 2005. Norsk flora (7. útg.). Ritstj. Reidar Elven. Det Norske Samlaget, Oslo.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Einkímblöðungar (Liliopsida)
Ætt (Family)
Grasætt (Poaceae)
Tegund (Species)
Knjápuntur (Danthonia decumbens)