Bjarnarkló (Heracleum mantegazzianum)

Útbreiðsla

Var flutt til landsins á síðustu öld, og hefur verið nokkuð vinsæl sem skrautjurt í görðum nú í seinni tíð. Varast ber að rækta þessar tegund, því hún þroskar auðveldlega fræ og dreifir sér af sjálfsdáðum. Fyrr en varir getur hún orðið alvarlegt illgresi sem erfitt er að uppræta líkt og skógarkerfilinn. Hún hefur nú þegar náð að dreifast nokkuð frá ræktun á nokkrum stöðum. Í Danmörku, Noregi og fleiri nágrannalöndum okkar hafa menn misst tökin á þessum plöntum með alvarlegum afleiðingum. Bjarnarklóin mun vera byrjuð að dreifast út á nokkrum stöðum á Suðurlandi, en lítið er vitað um útbreiðslu hennar annars staðar, enda er fremur nýlega farið að aðgreina bjarnarkló frá tröllakló.

Almennt

Plantan er eitruð og getur hörund brunnið undan henni í sólarljósi.

Lýsing

Afar stórvaxin (2,2 – 3,2 m) planta af sveipjurtaætt, oft með sterka, beiska lykt.

Blað

Hefur venjulega einn, lítið eitt loðinn stöngul með víðu miðholi. Neðri hluti stöngulsins getur verið allt að 50 – 100 mm í þvermál. Stöngullinn hefur fjólubláa eða dumbrauða flekki og er settur stinnum hárum neðan til, en mýkri hárum ofar. Hárin eru glær, krulluð og standa 45 gráður út frá stönglinum. Blöðin eru þrífingruð eða fjöðruð, gróftennt, með fjólublá slíður, stilkurinn venjulega 40 – 90 cm langur. Blaðröndin er tvítennt eða tvísagtennt með langyddum tönnum. Endar smáblaðanna eru mjó- og langyddir. Heil, samsett blöð geta verið allt að 3 metra löng.

Blóm

Sveipirnir eru venjulega flatir eða lítið eitt kúptir, 9-15 sm háir og 25-60 sm breiðir.

Aldin

Aldinin eru öfugegglaga með fjórum dökkum rákum sem breikka neðst, lítið eitt loðin með stuttum kirtilhárum (0,5 – 1 mm).

Afbrigði

Er náskyld tröllakló, og það er fremur nýlega farið að aðgreina bjarnarkló frá tröllakló.

Greining

Bjarnarkló og Tröllakló eru mjög líkar, þekkjast helst í sundur á aldininum, hæringu, og skerðingu blaðanna. Bjarnarkló er allmiklu stærri en ætihvönn.

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Sveipjurtaætt (Apiaceae)
Tegund (Species)
Bjarnarkló (Heracleum mantegazzianum)