Sæhvönn (Ligusticum scoticum)

Útbreiðsla

Fremur sjaldgæf. Hún er algengust á Vesturlandi, en finnst dreift um Suður- og Austurströndina, en ófundin á Norðurlandi frá Skaga austur á Digranes.

Búsvæði

Sjávarhamrar og sjávarbakkar, urð og bollar við sjó (Hörður Kristinsson 2010).

Lýsing

Hávaxin planta (30–60 sm) með hvíta blómsveipi og rauðmengaða stöngla. Blómgast í júní–júlí.

Blað

Blöðin stilkuð, þrífingruð. Smáblöðin stilklöng og aftur þrífingruð. Smáblöð annarrar gráðu flipuð eða sepótt, fliparnir tenntir, slíðurrendur rauðar (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Blómin eru 3–4 mm í þvermál. Krónublöðin öfugegglaga eða tungulaga, stundum skert í oddinn, hvítleit eða aðeins bleikleit. Fræflar fimm, frævan með tveim stílum. Stórreifar strik- eða sverðlaga, flatar, 1–1,5 sm á lengd (Hörður Kristinsson 2010).

Aldin

Aldinið klofnar í tvö deilialdin, 6–8 mm á lengd, með fimm langrifjum (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Auðþekkt frá öðrum hvönnum á þrífingruðum blöðum frá öðrum hvönnum. Auk þess er hún mun minni.

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Sveipjurtaætt (Apiaceae)
Tegund (Species)
Sæhvönn (Ligusticum scoticum)