Tröllakló (Heracleum persicum)

Útbreiðsla

Hún var flutt til landsins á síðustu öld, og hefur verið nokkuð vinsæl sem skrautjurt í görðum nú í seinni tíð. Varast ber að rækta þessar tegund, því hún þroskar auðveldlega fræ og dreifir sér af sjálfsdáðum. Fyrr en varir getur hún orðið alvarlegt illgresi sem erfitt er að uppræta líkt og skógarkerfilinn. Hún hefur nú þegar náð að dreifast nokkuð frá ræktun á nokkrum stöðum. Í Danmörku, Noregi og fleiri nágrannalöndum okkar hafa menn misst tökin á þessum plöntum með alvarlegum afleiðingum. Tröllaklóin var upphaflega flutt til Akureyrar frá Norður-Noregi á vegum Lystigarðsins, og hefur verið ræktuð á nokkrum stöðum við Eyjafjörð. Ekki er með vissu vitað um útbreiðslu hennar á landsvísu.

Almennt

Plantan er eitruð og getur hörund brunnið undan henni í sólarljósi.

Lýsing

Afar stórvaxin (1,8 – 2,8 m) planta af sveipjurtaætt, með lykt sem líkist einna helst anís.

Blað

Plantan myndar venjulega fleiri en einn (1-5), holan, hærðan stöngul, sem er fjólublár neðst en dregur úr lit ofar. Stöngulhárin eru glær og útstæð, ókrulluð. Blöðin eru allt að 2 metra löng og 80 sm breið. Sagtennur blaðrandarinnar eru venjulega snubbóttar (ávalar), og endar smáblaðanna styttri og breiðyddari. Neðra borð blaðsins er venjulega þétt sett stuttum hárum, en efra borðið er hárlaust. 

Blóm

Sveipirnir eru meir eða minna kúptir, 10-15 sm háir og 30-50 sm breiðir. 

Aldin

Aldinin eru aflöng, með fjórum, dökkum og jafnbreiðum rákum.

Afbrigði

Afar breytileg í útliti.

Greining

Tröllakló og bjarnarkló eru mjög líkar, þekkjast helst í sundur á aldininum, hæringu, og skerðingu blaðanna. Blöðin eru margskiptari á tröllakló en hjá bjarnarkló. Tröllakló er allmiklu stærri en ætihvönn.

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Sveipjurtaætt (Apiaceae)
Tegund (Species)
Tröllakló (Heracleum persicum)