Hagabrúða (Valeriana sambucifolia)

Útbreiðsla

Fremur sjaldgæf á Íslandi, finnst aðeins á sunnanverðu landinu.

Búsvæði

Oftast í brekkum á móti suðri, eða í skóglendi.

Lýsing

Hávaxin planta (50–150 sm) með dökkgræn, deild blöð og mörg, lítil, ljósbleik blóm í sveipum.

Blað

Oftast bæði ofan- og neðanjarðarstönglar. Stöngullinn er gáróttur. Blöðin eru gagnstæð, stakfjöðruð, með lensulaga til egglensulaga, tenntum, loðnum smáblöðum. Stofnblöðin eru langstilkuð, oftast með 3-6 blaðpörum. Bæði stofn- og stöngulblöð hafa eitt endasmáblað sem er nokkuð stærra en hliðarsmáblöðin. Stundum finnast plöntur með ódeild eða fádeild blöð. (Hörður Kristinsson 2010, Lid og Lid 2005).

Blóm

Blómin mörg saman í sveipleitri blómskipan, fimmdeild. Krónan er trektlaga, bleik, samblaða með fremur grunnum skerðingum og ávölum flipum. Krónupípan 4–8 mm djúp. Bikarblöðin eru 2-3 mm löng, hærð, odddregin, með rauðum röndum og himnurend, oftast tennt. Fræflar eru þrír í hverju blómi. Ein fræva með einum stíl og þrískiptu fræni (Hörður Kristinsson 2010, Lid og Lid 2005).

Aldin

Aldin 4–5 mm langt (Lid og Lid 2005).

Greining

Hún líkist mjög garðabrúðu, sem víða er ræktuð í görðum. Hagabrúðan á að hafa stuttar ofanjarðarrenglur út frá stofninum, sem vantar á Garðabrúðu, og krónurör blómanna er lengra en á garðabrúðu. Ennfremur hefur endasmáblaðið tilhneigingu til að vera stærra en hliðarsmáblöðin á hagabrúðu, en öll svipuð að stærð á garðabrúðu.

Válistaflokkun

DD (vantar gögn)

ÍslandHeimsválisti
DD NE

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Hagabrúða er á válista í hættuflokknum DD (upplýsingar ófullnægjandi).

Válisti 1996: Hagabrúða er á válista í hættuflokknum DD (upplýsingar ófullnægjandi).

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Lid, J. og D.T. Lid. 2005. Norsk flora (7. útg.). Ritstj. Reidar Elven. Det Norske Samlaget, Oslo.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae)
Tegund (Species)
Hagabrúða (Valeriana sambucifolia)