Rauðkollur (Knautia arvensis)

Útbreiðsla

Rauðkollur er fremur sjaldséð jurt á Íslandi, aðeins fundinn á nokkrum stöðum í eða nálægt byggð. Útbreiðsla hans bendir til að hann sé aðfluttur frá útlöndum en hefur áreiðanlega verið hér í nokkur hundruð ár. Í Glerárgili myndar hann samfellda breiðu sem er um 25–30 m í þvermál. Líklega er hvergi meira af honum en þar.

Búsvæði

Gras- og blómlendi.

Lýsing

Hávaxin (30–80 sm), loðin jurt með hærð blöð og stöngla og flata, ljósfjólurauða blómkolla.

Blað

Blöð grágræn og loðin, hin neðstu oftast heil en stöngulblöð djúpflipótt eða skipt (Lid og Lid 2005), þau neðri með stórum endaflipa. Stofnblöðin heilrend eða smátennt, lensulaga með alllöngum vængjuðum stilk. Stöngullinn er sívalur, gáraður, loðinn með einföldum hárum og kirtilhárum.

Blóm

Blómin ljósfjólurauð á litinn, mörg þétt saman í körfuleitri blómskipan á stöngulenda með stærri jaðarblómum til jaðranna. Krónan er pípulaga neðst, breikkar fram með fjórum misstórum krónuflipum, 15-20 mm löng. Bikarinn er ummyndaður í átta hærða bursta. Hann hefur fjóra langa fræfla með gulbrúnum frjóhirslum og eina frævu með einum stíl.

Aldin

Aldinin eru hnetur með svifkransi (Stefán Stefánsson 1948).

Greining

Hann minnir helst á stúfu en blöðin eru ólík, fjaðurskipt eða sepótt. Auk þess er kollurinn mun rauðari og flatur, líkist fremur körfu í lögun.

Válistaflokkun

NA (uppfyllir ekki forsendur mats)

ÍslandHeimsválisti
NA NE

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Rauðkollur er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Válisti 1996: Rauðkollur er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Lid, J. og D.T. Lid. 2005. Norsk flora (7. útg.). Ritstj. Reidar Elven. Det Norske Samlaget, Oslo.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Stefán Stefánsson. 1948. Flóra Íslands (3. útg.). Hið íslenzka náttúrufræðifélag og Bókaútgáfan Norðri, Akureyri.

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae)
Tegund (Species)
Rauðkollur (Knautia arvensis)