Línarfi (Stellaria borealis)

Útbreiðsla

Sjaldgæf tegund. Þar sem hann þarf stuðning af grasi og öðrum undirgróðri, þrífst hann ekki þar sem mikil beit sauðfjár eða fugla fjarlægir undirgróðurinn. Stundum finnst hann úti í hólmum eða eyjum, jafnvel á hálendinu.

Búsvæði

Vex að jafnaði sem undirgróður í víðikjarri í deiglendi, eða sjaldnar undir birki eða fjalldrapa.

Lýsing

Fjölær jurt.

Blað

Hárlausir, grannir, uppsveigðir, greinóttir, ferstrendir stönglar. Laufblöðin eru lensulaga, græn, 1-3 sm á lengd, oddmjó, oft með strjálum randhárum við blaðfótinn, annars hárlaus.

Blóm

Blómin eru langleggjuð, stök eða fá saman í efstu blaðöxlum, forblöð blómanna græn eins og laufblöðin með örfáum randhárum við fótinn. Blómin eru afar smá, fimmdeild, krónublöðin vantar oftast, eða eru mjög stutt. Krónuna vantar oftast, eða er mjög ófullkomin, krónublöðin hvít og mun styttri og mjórri en bikarblöðin. Bikarblöðin lensulaga, hvassydd, græn og himnurend, 3-4 mm löng. Tíu stuttir fræflar, frævan er með fjórum eða fimm stílum.

Aldin

Hýðisaldin (Stefán Stefánsson 1948). Stendur langt út úr bikarnum við þroskun, í fyrstu grænleitt en verður fljótt rauðbrúnt á litinn. Fræin eru mörg, dökk brún, um 1 mm að stærð.

Greining

Líkist mjög stjörnuarfa en er hávaxnari með minni blóm, krónublöðin miklu styttri en bikarblöðin, efstu blöðin með gisnum randhárum við grunninn. Líkist einnig bakkaarfa en hefur ekki glær háblöð undir blómleggnum heldur græn.

Válistaflokkun

VU (tegund í nokkurri hættu)

ÍslandHeimsválisti
VU NE

Forsendur flokkunar

Línarfi flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem stofninn er talinn lítill og telji færri en 1000 fullþroska einstaklinga auk þess sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 15 km2.

Viðmið IUCN: D2

D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.
D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Línarfi er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Válisti 1996: Línarfi er á válista í hættuflokki LR (í nokkurri hættu).

Verndun

Línarfi er friðaður samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Stefán Stefánsson. 1948. Flóra Íslands (3. útg.). Hið íslenzka náttúrufræðifélag og Bókaútgáfan Norðri, Akureyri.

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Hjartagrasætt (Caryophyllaceae)
Tegund (Species)
Línarfi (Stellaria borealis)