Vatnsögn (Tillaea aquatica)

Útbreiðsla

Afar sjaldgæf, hefur aðeins fundist á Suðurlandi. Finnst á hverasvæðinu við Laugarvatn, á jarðhitasvæðinu í Laugarási og við Þorlákshver í Skálholti. Miklar sveiflur eru á magni hennar frá einum tíma til annars. Þrátt fyrir rask sem oft verður á þessum jarðhitasvæðum, virðist hún þó oftast komast af og geta komið upp nýjum stofni. Engin leið er að geta sér til um aldur vatnsagnarinnar í landinu.

Búsvæði

Blaut flög og sendnar lækjareyrar við jarðhita (Hörður Kristinsson 2010).

Lýsing

Örsmá vatnajurt (1–5 sm) með striklaga, gagnstæð blöð og bleikleit, fjórdeild blóm.

Blað

Blöðin gagnstæð, þykk, egglaga, græn eða móbrún, hvassydd (Hörður Kristinsson 2010). Stönglar greinóttir (Lid og Lid 2005).

Blóm

Fjórdeild, hvít eða bleikleit blóm í blaðöxlum, örsmá á milli tveggja gagnstæðra blaða. Fjórar frævur (Hörður Kristinsson, Lid og Lid 2005).

Aldin

Hvert blóm myndar 4 allstór fræ.

Válistaflokkun

CR (tegund í bráðri hættu)

ÍslandHeimsválisti
CR NE

Forsendur flokkunar

Vatnsögn hefur fundist á þremur jarðhitasvæðum á sunnanverðu landinu en virðist horfin af einu þeirra og í greinilegri afturför á öðru.

Viðmið IUCN: B1; B2b(ii,v)

B1. Útbreiðsla áætluð minni en 100 km2.
B2. Dvalar- eða vaxtarsvæði áætlað minna en 10 km2 og mat bendir til að:
a. Útbreiðsla stofns er mjög slitrótt eða takmörkuð við aðeins einn stað.
b. Stofn hefur sífellt minnkað samkvæmt athugun, ályktun eða áætlun eftirfarandi þátta;
(ii) dvalar- eða vaxtarsvæðis,
(v) fjölda fullþroska einstaklinga.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Vatnsögn er á válista í hættuflokki CR (í bráðri hættu).

Válisti 1996: Vatnsögn er á válista í hættuflokki CR (í bráðri hættu).

Verndun

Vatnsögn er friðuð samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Lid, J. og D.T. Lid. 2005. Norsk flora (7. útg.). Ritstj. Reidar Elven. Det Norske Samlaget, Oslo.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Helluhnoðraætt (Crassulaceae)
Tegund (Species)
Vatnsögn (Tillaea aquatica)