Aðalbláberjalyng (Vaccinium myrtillus)

Útbreiðsla

Algengt í snjóþungum héruðum á landinu. Þannig er það mjög útbreitt á Vestfjörðum, í útsveitum á Norðurlandi frá Skaga austur á Austfirði og víðar. Þar sem ekki er nógu snjóþungt fyrir það á láglendi má oft finna það þegar kemur í 300-500 m hæð yfir sjó, þannig vex það víða á Suðvestur- og Vesturlandi og einnig í innsveitum Eyjafjarðar. Aðalbláberjalyngið má finna allvíða upp að 700 m hæð á Tröllaskaga, hæst skráð á Barkárdalsbrúnum í 880 m, Skessuhrygg við Höfðahverfi og Glerárdalsbotni við Akureyri í 750 m, og Fögruhlíð við Langjökul í 720 m. 

Almennt

Nytjar

Góð til átu, fersk sem sultuð.

Búsvæði

Í hlíðarbollum, mólendi og kjarri í snjóþungum byggðarlögum (Hörður Kristinsson 2010).

Lýsing

Lágvaxið lyng (10–20 sm) með ljósgræn, tennt blöð og bleik, drúpandi blóm. Þroskar blá eða svört, gómsæt ber. Blómgast í júní.

Blað

Stönglar oftast jarðlægir með uppsveigðum greinum. Stöngulgreinar grænar, hvassstrendar, blöðin stakstæð, fínsagtennt, 10–20 mm á lengd og 7–12 mm á breidd, ganga oftast fram í V-laga odd (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Blómin eru 6–8 mm í þvermál, fimmdeild. Krónan rauðgræn eða bleikrauð, belgvíð og þröng í opið, með fimm afturbeygðar, grænleitar tennur að framan. Bikarinn skífulaga, flipalaus, fjólublár. Fræflar tíu, frjóhnappar appelsínugulir. Ein fræva með einum stíl (Hörður Kristinsson 2010).

Aldin

Aldinin ýmist dökkblá, nær svört eða ljósari og bládöggvuð af þunnu vaxlagi sem auðveldlega strýkst af, um 1 sm í þvermál (Hörður Kristinsson 2010).

Afbrigði

Tveir aðgreindir stofnar eru af aðalbláberjalyngi á Íslandi, annar með bláum berjum, en hinn með nær svörtum berjum. Bragðmunur er á þessum tvenns konar berjum.

Greining

Líkist helst bláberjalyngi en aðalbláberjalyngið þekkist best á hinum grænu, hvassstrendu greinum og tenntu blöðum, og grænum strendum stöngli. Bláberjalyngið hefur heilrend laufblöð, ávöl að framan og brúna, viðarkennda stöngla.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Lyngætt (Ericaceae)
Tegund (Species)
Aðalbláberjalyng (Vaccinium myrtillus)