Rauðberjalyng (Vaccinium vitis-idaea)

Útbreiðsla

Mjög sjaldgæft á Íslandi. Heimkynni rauðberjalyngsins á Íslandi eru á Austfjörðum, en einnig vex það á þrem stöðum í Öxarfirði. Á síðari árum hefur það einnig fundist í Þrastarskógi og í furulundinum við Rauðavatn, og gæti það á báðum þeim stöðum verið aðflutt með skógrækt. Allir fundarstaðir þess eru á láglendi, um eða neðan 200 m.

Búsvæði

Lyngmóar, birkiskógur.

Lýsing

Lágvaxinn runni (5–30 sm) með stinn, gulgræn blöð og hvít eða bleikleit blóm sem þroskast í rauð, safarík ber.

Blað

Blaðsprotar eru jarðlægir, með stakstæðum, gisstæðum, mjóhjartalaga eða langegglaga, stuttstilkuðum blöðum. Blöðin eru sígræn með niðurorpnum, örlítið tenntum röndum, 3-4 mm á lengd og 1,5-2 mm á breidd, dökkgræn eða rauðleit á efra borði en ljósgræn neðan með áberandi miðrifi.

Blóm

Blóm rauðberjalyngsins eru 6-7 mm í þvermál, fjórdeild, drúpandi, hvert á 1-1,5 sm löngum rauðum legg, með tveim örsmáum forblöðum mishátt á miðjum legg. Krónan er djúpklofin, fagurrauð, krónuflipar 4-5 mm á lengd, djúpt aftursveigðir. Bikarinn er grunnskertur, dökkrauður. Fræflarnir eru átta í knippi, standa út úr blóminu, knappleggirnir eru hærðir, dökkbrúnir. Frjóhirslur eru aflangar, ljósbrúnar. Frævan er ein með löngum, rauðum stíl.

Aldin

Aldinið er rautt, safaríkt og ætt ber, 5-7 mm í þvermál, og stendur stíllinn upp úr því.

Greining

Það líkist nokkuð sortulyngi en blöðin eru oftast gulgrænni, ofurlítið tennt, þynnri en á sortulyngi og með niðurorpnum röndum. Berin á rauðberjalyngi eru rauð og safarík, en þau eru þurr og mjölkennd á sortulyngi.

Válistaflokkun

VU (tegund í nokkurri hættu)

ÍslandHeimsválisti
VU LC

Forsendur flokkunar

Rauðberjalyng flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 10 km2.

Viðmið IUCN: D2

D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.
D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Rauðberjalyng er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Válisti 1996: Rauðberjalyng er ekki á válista.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Lyngætt (Ericaceae)
Tegund (Species)
Rauðberjalyng (Vaccinium vitis-idaea)