Vaccinium uliginosum (Vaccinium uliginosum)

Útbreiðsla

Mjög algengt um allt land frá láglendi upp í 800 m hæð. Hæst hefur það verið skráð í 900 m í fjallshlíðum við Skriðudal í Hörgárdal.

Almennt

Jurtin í heild sinni var áður talin kælandi og barkandi. Þessi tegund var notuð gegn lífsýki, köldu og skyrbjúgi en eins þótti duft af rótinni gott til að strá í holdfúa sár. Eins var áður fyrr, lögur af berjunum látinn súrna og svo notaður til að barka skinn ásamt álúni. Til litunar má nota nýsoðin berin til að gefa lifrauðan lit en gulan lit má fá úr blöðunum (Ágúst H. Bjarnason 1994).

Nytjar

Mjög algengt er að nýta berin bæði fersk, í saft eða sultu (Ágúst H. Bjarnason 1994).

Búsvæði

Lyngmóar, bollar og hlíðar, stundum á mýraþúfum (Hörður Kristinsson 2010).

Lýsing

Lágvaxið lyng (8–15 sm) með sívölum greinum, heilrendum blöðum og drúpandi, bleikleitum blómum. Þroskar blá ber. Blómgast í maí–júní.

Blað

Greinarnar sívalar, brúnar, með stakstæðum öfugegglaga blöðum. Blöðin oftast ávöl fyrir endann eða lítið eitt odddregin, 10–18 mm á lengd og 6–12 mm á breidd, heilrend með lítið eitt niðurorpnum röndum, netstrengjótt (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Blómin eru fimmdeild. Krónan krukku- eða bjöllulaga, með grunnum skerðingum, hvít, bleik eða rauð, oft nokkuð flekkótt, um 4 mm breið og 5 mm á lengd. Bikarinn grunnur, grænn eða bláleitur með rauðleitum, ávölum, aðfelldum flipum. Fræflarnir tíu, frjóhirslur með tveim þráðmjóum, uppsveigðum hornum. Ein fræva með einum stíl (Hörður Kristinsson 2010).

Aldin

Aldinið blátt, döggvað, 9–12 mm í þvermál (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Líkist aðalbláberjalyngi en bláberjalyngið þekkist frá því á sívölum, brúnum greinum og ótenntum, snubbóttum blöðum. Bláber eru harðgerðari en aðalbláber, en tæplega eins bragðgóð. Líkist einnig ljósalyngi.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Ágúst H. Bjarnason og Eggert Pétursson. 1994. Íslensk flóra með litmyndum. Forlagið, Reykjavík.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Lyngætt (Ericaceae)
Tegund (Species)
Vaccinium uliginosum (Vaccinium uliginosum)