Giljaflækja (Vicia sepium)

Útbreiðsla

Fremur sjaldgæf jurt sem vex nær eingöngu á Suðurlandi, einkum undir Eyjafjöllum og í Mýrdal. Hefur lengi verið landlæg frá Hvammi undir Eyjafjöllum austur að Hafursey á Mýrdalssandi, og í Vestmannaeyjum. Eru skráðir um 7 fundarstaðir á þessu svæði. Hún hefur einnig fundist á allmörgum öðrum stöðum utan aðalútbreiðslusvæðisins, en þar er hún alls staðar slæðingur án þess að hafa fasta búsetu. Þannig hefur hún fundist víða á höfuðborgarsvæðinu, einnig í Andakíl og Gilsbakka í Borgarfirði, Hveragerði, Selfossi, Kvískerjum og Reyðarfirði. Hún er án efa gömul á aðalsvæðinu í Mýrdalnum og Vestmannaeyjum, gæti verið frá landnámstíð eða fyrr. Tegundin er þekkt að því að dreifast með manninum, og líklega eru þannig til komnir fundarstaðir á höfuðborgarsvæðinu og víðar um landið. Giljaflækja hefur aðeins verið skráð á láglendi upp að 150 m.

Búsvæði

Graslendi og blómlendi.

Lýsing

Meðalhá jurt (20–40 sm) með fjöðruðum blöðum, vafþráðum og fjólubláum blómklösum.

Blað

Blöðin fjöðruð, með fimm til átta blaðpörum, smáblöðin mjóegglaga, snubbótt í endann en þó broddydd, gis- og stutthærð, endasmáblöðin ummynduð í vafþræði sem vefjast utan um greinar nágrannajurta. Stönglarnir gáróttir, grannir (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Blómin eru einsamhverf, í einhliða, leggstuttum, aðeins þrí- til fimmblóma klösum. Þau eru svipuð að gerð og hjá umfeðmingi og álíka stór. Bikarinn gishærður, klukkulaga með fimm hvassyddum tönnum (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Líkist umfeðmingi en giljaflækja þekkist á legglausum eða stuttleggjuðum og miklu blómfærri klösum með ljósari blómum, smáblöðin snubbótt í endann með hárfínum broddi. Giljaflækja greinist frá baunagrasi á smærri og blárri blóm, fleiri og mjórri smáblöð.

Válistaflokkun

VU (tegund í nokkurri hættu)

ÍslandHeimsválisti
VU NE

Forsendur flokkunar

Giljaflækja flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 10 km2.

Viðmið IUCN: D2

D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.
D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Giljaflækja er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Válisti 1996: Giljaflækja er á válista í hættuflokki LR (í nokkurri hættu).

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Ertublómaætt (Fabaceae)
Tegund (Species)
Giljaflækja (Vicia sepium)