Græðisúra (Plantago major)

Útbreiðsla

Vex allvíða um sunnan- og vestanvert landið. Sést lítið á norðanverðu landinu nema við volgar uppsprettur.

Búsvæði

Við laugavætlur eða á jarðhitasvæðum. Slæðingur í þéttbýli, götum og hlaðvörpum (Hörður Kristinsson 2010).

Lýsing

Fremur lágvaxin planta (5–30 sm) með stór, bogstrengjótt blöð og blóm í löngu axi. Blómgast í júní–júlí.

Blað

Blöðin stofnstæð, langstilkuð. Blaðkan egglaga eða oddbaugótt, nær heilrend, bogstrengjótt, 2,5–10 sm löng og 2–8 sm á breidd (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Blómin smá og ósjáleg, þétt saman í 2–12 sm löngu axi. Krónan móleit með oddmjóum flipum. Bikarblöðin fjögur, snubbótt, græn, himnurend. Fræflar fjórir. Ein fræva (Hörður Kristinsson 2010).

Aldin

Baukaldin sem opnast með þverskoru við þroskun (Hörður Kristinsson 2010).

Afbrigði

Oft dvergvaxin á jarðhitasvæðum (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Líkist einna helst selgresi sem er hávaxnara, hefur lengri og mjórri blöð og styttri blómskipan.

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Græðisúruætt (Plantaginaceae)
Tegund (Species)
Græðisúra (Plantago major)